29.1.08

28 feb. Florida

Sama blíðan, annar dagur.
Í dag var frekar rólegt yfir genginu, ég keyrði Margréti til læknis, en hún hefur verið fárveik undanfarna 3. daga.
Niðurstaða, streptakokkar (held það sé skrifað svona) og pennsilín kúr.
Eftir hédegi fórum við til Disney World og eyddum deginum í Magic Kingdom sem verður að segjast er alger snilld, mæli með þessu fyrir börn og fullorðna.
Fékk þær fréttir þegar ég hringdi í Golfverslun Edwin Watts í dag að kylfurnar mínar ættu að koma á föstudaginn og ef það stenst þá ætti ég að ná að testa þær svolítið áður en þær fara í frostið í Básum.
Ætli maður leigi bara ekki aftur sett á morgun ?
Já og beri á sig sólarvörn líka : )

Kveðja í skaflinn : )

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Baráttu kveðjur til Margrétar.

Spurning um að þið hjónin farið næst til Sviss? :)
Herveldið BNA fer greinilega illa í ykkur hjónin.
(Varst þú ekki með 40° í síðustu heimsókn?)

Endilega pósta nokkrum myndum af Alligator-um.

M2

Nafnlaus sagði...

Það er nú bara ennþá janúar á Fróninu :)

Nafnlaus sagði...

Muna að fara eftir þessari gullnu reglu, svo að jafnvægið í heiminum haldist.

"Every time a golfer makes a birdie, he must subsequently make two triple bogeys to restore the fundamental equilibrium of the universe."

M7

Nafnlaus sagði...

@M7 ;))


M2

Nafnlaus sagði...

jæja, komin færsla á herping ;-)