28.12.07

Áramótakveðja M4. 2007



Hér er árleg Áramótakveðja mín til ykkar kæru Móar (aðrir dyggir lesendur mega taka þetta til sín líka) með kæru þakklæti fyrir árið sem er að líða.
Eins og sést í þessu myndbandi þurfum við að vera talsvert duglegri við að hittast, þar sem einu myndirnar sem ég fann voru frá Meistaramótinu okkar á Hellu.

Það er auðvitað alveg ljóst að árið 2008 mun toppa árið sem er að líða enda er nú þegar ákveðið að skella sér erlendis í golf seinni part sumars, svo er bara að spinna eitthvað skemmtilegt í viðbót : )

Takk fyrir mig.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Glæsilegt!
Takk fyrir mig sömuleiðis og sérlegar þakkir fyrir að hafa ekki myndað mína glæstu sveiflu. ;))

Ást únd ríspekt!

M2

Nafnlaus sagði...

Þökkum hlýjar kveðjur

nú þurfum við að fara að halda töflufundi um Ryderferðina.

Legg til að sá fyrsti verði haldin í hinu nýja móakoti í miðdal í lok jan eða byrjun feb.

Þú verður að fá þér gleiðlinsu, svo hægt sé að taka upp þessa víðu þykkvabæjarsveiflu sem M2 er að státa sig af.

M7

Unknown sagði...

Takk kærlega kæri vinur, það yljar að sjá þessi fallegu andlit, hlakka til að taka dolluna að ári;)
101m

M4 sagði...

Takk sömuleiðis allir.
M2, ég sé ekki betur en að það sért þú í syngjandi sveiflu þegar c.a. 16 sek eru liðnar af bandinu ; )
Ekki reyna að þræta fyrir þetta, eða kenna Röggu um : )
Annars lýst mér vel á töflufundinn en einmitt þessi tímasetning hentar mér ekki þar sem ég verð við tyrftingar á Flórída á þessum tíma : )