Já gjafmildi þeirra hjá Byr er stórkostleg, ég sá í Fréttablaðinu í dag að dagskrá Stöðvar 2 verður í opinni dagskrá á nýársdag í boði Byrs.
Flott hjá þeim en hvað ætli dyggum áskrifendum stöðvarinnar finnist um þetta, borga rándýrt mánaðargjald og svo er bara "nýársdýrðin" í opinni !
Svo fór ég að skoða hvað verður í boði og komst að því að yfir allan daginn er eingöngu um endursýningar að ræða, fyrir utan þrjár bíómyndir kvöldsins !
Jú, endursýningar eru frumsýningar fyrir þá sem eru ekki áskrifendur stöðvarinnar en gjöfin er bara ekki eins flott þegar dagskráin er skoðuð.
Af þessum myndum sem eru á nýárskvöld á ég bara eftir að sjá myndina Ray, en hún er eftir miðnætti þannig að ef ég þekki 365 rétt þá verður búið að loka þegar hún byrjar, og hinar tvær myndirnar eru bara ekkert spes.
Takk fyrir mig Byr, thanks for nothing : )
3 ummæli:
thad er ekki ad marka thig buinn ad sjà allt, meira ad segja rocky 15;-)
m3
Eigi skal gleyma Spawn!
M2
Er þetta ekki bara spurning um að taka strákakveld og horfa á Spawn ?
Þoriði, eða eruð þið hræddir við að fíla ?
Skrifa ummæli