29.7.05

Golf

Jæja, það er skemmst frá því að segja að golfferð okkar á Hellu í gær var scnilldin ein.
Við fórum saman 4, Jói, M3 og M7 og ég, áhveðið var að spila holukeppni í tvennu lagi, sem lið voru ég og M7 saman á móti Jóa og M3. Og svo aukalega M7 vs. Jói og svo ég vs. M3.
Nú það reyndist svo sem ekki verða mikil spenna í liðakeppninni þar sem M7 og ég rúlluðum (mölluðum) yfir andstæðingna : ) Og M7 tók Jóa í kennslustund t.d. með þremur fulgum í röð. Manni er heiður að fá að sjá svona spilamennsku.
Spenna komst þó í keppni okkar M3 þegar að Vestfjarðavíkingurinn náði að minnka forskot mitt niður í eina holu þegar aðeins sautjánda og átjánda voru eftir. En með gríðarlegum andlegum styrk ; ) náði ég að verja forustu mína og gott betur og vann með tveimur holum þrátt fyrir að M3 hafi að köflum sýnt hörkutakta.
Ávextir erfiðisins reyndust þó rírir því að af bjór og pizzu verðlaununum sem við M7 unnum fyrir fékkst "bara" bjórinn því að á Kristjáni tíunda á Hellu hefur vertinn ekki áhuga á að græða peninga og gera í leiðinni vel við viðskiftavininn, því að okkur var sagt að pizza ofninn væri kaldur og að of mikið mál væri að fíra upp í honum fyrir okkur svanga borgarbúa. Þetta þótti okkur afar súrt í broti sérstaklega þar sem nokkrir gestir staðarins voru að snæða pizzu......kaldur my ass !
Annars var þessi ferð gæðin ein og er ég þakklátur ferðafélögunum fyrir það og ekki má gleyma scnillingnum honum M5 sem að lánaði okkur sinn eðalbíl svo að við gætum farið allir saman einbíla, takk fyrir það kúturinn !


Satan.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þetta er svo vel skrifað að mogginn yrði stolur af að hafa þetta á forsíðu

M7

ps. það var heiður að spila með þér meistari, ég legg til að næst tökum við M2 og M5 í bakaríið með sama fyrirkomulagi

M4 sagði...

Til er ég !