Já það verður ekki skafið af Akureyringum að þeir eru miklir smáborgarar, tja allavega Gestur Einar leikari og útvarpsmaður með meiru. Í gær heyrði ég viðtal við hann á Rás 2 strax eftir 4 fréttir, þar sem hann var fljótur að rengja nýlesna veðurlýsingu þar sem var sagt að það væri dumbungur á Akureyri og smá úrkoma. Nei nei þetta er alrangt sagði Gestur, hér er búin að vera sól og blíða síðan á hádegi ! Nú sagði þáttastjórnandinn ? Ertu ekki að ýkja smá Gestur, spurði hún svo og þekkti greinilega Gest og vissi svo sannarlega að hann væri Akureyringur. Nei svaraði hann, og svo er ég líka svakalega stoltur af unga fólkinu....hér sér ekki vín á nokkrum einasta manni og umgengnin er til fyrirmyndar ! Jahá, það er alldeilis sagði þáttastjórnandi alveg gáttuð á þversögninni sem þarna var kominn.
Samt er nú svolítið sætt að heyra svona rembing, og hversu lágt menn eru tilbúnir að leggjast til að lokka aðeins fleiri hræður til bæjarins.
Allavega þá var nokkuð var þó um slagsmál á Akureyri í nótt og voru nokkrir aðilar fluttir undir læknishendur vegna þeirra. Þá komu ellefu fíkniefnamál upp á síðasta sólarhring.
Vandræðagemlingarnir voru örugglega allt saman utanbæjarfólk !
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli