31.7.05

Akureyri

Já það verður ekki skafið af Akureyringum að þeir eru miklir smáborgarar, tja allavega Gestur Einar leikari og útvarpsmaður með meiru. Í gær heyrði ég viðtal við hann á Rás 2 strax eftir 4 fréttir, þar sem hann var fljótur að rengja nýlesna veðurlýsingu þar sem var sagt að það væri dumbungur á Akureyri og smá úrkoma. Nei nei þetta er alrangt sagði Gestur, hér er búin að vera sól og blíða síðan á hádegi ! Nú sagði þáttastjórnandinn ? Ertu ekki að ýkja smá Gestur, spurði hún svo og þekkti greinilega Gest og vissi svo sannarlega að hann væri Akureyringur. Nei svaraði hann, og svo er ég líka svakalega stoltur af unga fólkinu....hér sér ekki vín á nokkrum einasta manni og umgengnin er til fyrirmyndar ! Jahá, það er alldeilis sagði þáttastjórnandi alveg gáttuð á þversögninni sem þarna var kominn.
Samt er nú svolítið sætt að heyra svona rembing, og hversu lágt menn eru tilbúnir að leggjast til að lokka aðeins fleiri hræður til bæjarins.
Allavega þá var nokkuð var þó um slagsmál á Akureyri í nótt og voru nokkrir aðilar fluttir undir læknishendur vegna þeirra. Þá komu ellefu fíkniefnamál upp á síðasta sólarhring.
Vandræðagemlingarnir voru örugglega allt saman utanbæjarfólk !


Satan.

30.7.05

Hotel Rwanda


Ég horfði á þessa merkilegu mynd í gær var nánast orðlaus yfir viðbjóðnum sem gekk yfir þetta fólk fyrir aðeins 10 árum síðan.
Þjóðernishreinsanir svipaðar og voru í Júgoslavíu eru söguþráðurinn í þessari sannsögulegu mynd, sem setur fókusinn á hótelstjóra sem reynir allt sem hann getur til að hjálpa fórnarlömbunum Tútsum.
Þetta er mynd sem allir verða og eiga að sjá því að þetta mun örugglega gerast aftur einhversstaðar.
Einkunn 9/10


Satan.

29.7.05

Golf

Jæja, það er skemmst frá því að segja að golfferð okkar á Hellu í gær var scnilldin ein.
Við fórum saman 4, Jói, M3 og M7 og ég, áhveðið var að spila holukeppni í tvennu lagi, sem lið voru ég og M7 saman á móti Jóa og M3. Og svo aukalega M7 vs. Jói og svo ég vs. M3.
Nú það reyndist svo sem ekki verða mikil spenna í liðakeppninni þar sem M7 og ég rúlluðum (mölluðum) yfir andstæðingna : ) Og M7 tók Jóa í kennslustund t.d. með þremur fulgum í röð. Manni er heiður að fá að sjá svona spilamennsku.
Spenna komst þó í keppni okkar M3 þegar að Vestfjarðavíkingurinn náði að minnka forskot mitt niður í eina holu þegar aðeins sautjánda og átjánda voru eftir. En með gríðarlegum andlegum styrk ; ) náði ég að verja forustu mína og gott betur og vann með tveimur holum þrátt fyrir að M3 hafi að köflum sýnt hörkutakta.
Ávextir erfiðisins reyndust þó rírir því að af bjór og pizzu verðlaununum sem við M7 unnum fyrir fékkst "bara" bjórinn því að á Kristjáni tíunda á Hellu hefur vertinn ekki áhuga á að græða peninga og gera í leiðinni vel við viðskiftavininn, því að okkur var sagt að pizza ofninn væri kaldur og að of mikið mál væri að fíra upp í honum fyrir okkur svanga borgarbúa. Þetta þótti okkur afar súrt í broti sérstaklega þar sem nokkrir gestir staðarins voru að snæða pizzu......kaldur my ass !
Annars var þessi ferð gæðin ein og er ég þakklátur ferðafélögunum fyrir það og ekki má gleyma scnillingnum honum M5 sem að lánaði okkur sinn eðalbíl svo að við gætum farið allir saman einbíla, takk fyrir það kúturinn !


Satan.

28.7.05

Golf


Loksins loksins kemst maður í golf.
Ég stór efast um að ég hafi náð 18 holum að meðaltali á viku í sumar, en sumarið er auðvitað ekki búið.
Hella í dag með þremur velvöldum scnillum.


Satan.

25.7.05

Priceless


Svolítið gamalt en what the hell !

Drekinn!


Þú er drekinn !
Heyrirðu það.........DREKINN !!!!!

Kvót

A dirty mind is a joy forever.
Oscar Wilde.


Satan.

Speki

Mér finnst ekkert mál að mæta í vinnu, en þessir 8 tímar þangað til að ég kemst heim aftur eru bara svo helvíti lengi að líða !


Satan.

24.7.05

Maður með mönnum

Það er annars helst í fréttum að á föstudaginn fjárfestum við fjölskyldan litla í fíneríis uppþvottavél af AEG gerð.
Ekki þarf að taka fram að í leiðinni var verslað viðbótar leirtau svo að nú er hægt að óhreinka að vild !
Dýrð og draumur !


Satan.

Peter Crouch


Þessi mynd var tekin í leik Liverpool-Olympiakos sem fór 4-3.
Hér sést vel hversu hár Peter er við hlið Luis Garcia.


Satan.

23.7.05

Man utd


Já tjallarnir hafa húmör svo mikið er víst !
Á myndinni má sjá stóra skiltið við aðalinngang Old traffort þar sem á að standa Manchester United, en einhverjir svaka fyndnir gaurar hafa átt við skiltið svo að þar stendur núna " cunt "
Já gaman að þessu.


Satan.

22.7.05

Dans i kring


Bauninn klikkar ekki á því frekar en vanalega.
Allir vita að að munurinn á íslensku og dönsku getur verið mikill eins og t.d. hægri er jagre á dönsku...he he he
En danska útgáfan af Securitas er tær scnilld = Dansikring ! Hí hí hí......
Aular !


Satan.

21.7.05

Enski boltinn


Nú eru bara 3 vikur í að enska deildin byrji, halleljúga !
Í dag gekk ég frá áskrift að boltanum hjá Símanum sem tryggir mér 350 beinar útsendingar frá úrvalsdeildinni, eða það sem betra er, að ég mun nú geta séð alla leiki með mínum mönnum í vetur, heimaleiki sem og útileiki.
Hvílík scnilld !
Koma svo Poolarar !!!!



Satan.

Liðsmynd


Já hér er loks komin liðsmynd af Liverpool þar sem nýjasti leikmaðurinn, hinn hávaxni Peter Crouch (Pétur Klof) er kominn í treyuna rauðu.
Hann fittar bara vel í liðið verð ég nú bara að segja.



Satan.

Police


Sko........þetta er allt að koma hjá Írökum eftir að Goggi doobúlja kom til hjálpar !
Komnar tjellingar í lögguna !


Satan.

19.7.05

MadaJacket


Er nýbúinn að horfa á þessar tvær myndir.
Madagascar er langt frá því að vera eins góð og aðrar slíkar myndir eins og t.d. Shrek og Toy story.
Svolítið fyndinn en samt aðallega töff teiknuð eins og forverar hennar.
Einkunn 5/10

The jacket er spennu tryllir með Adrien Brody í aðal.
Ágætis mynd en pínulítið ruglingsleg, jafn vel fyrir mig : )
Einkunn 6/10

Túrhestar frá helvíti !


tourist
Originally uploaded by satan.


Andskoti eru óþolandi þessi hjóla fífl sem sífellt reyna að freista manns í að keyra sig niður á þjóðveginum !
Þessir hálfvitar vita greinilega ekkert um íslenskt veðurfar og ennþá minna um gatnakerfið hér á landi.
Og svo eru það þessir fávitar sem álpast hinga til lands til að vekja athygli á einhverju stórmerkilegu eins og Japönsku fíflin sem fóru hringin á sólarknúnum þríhjólum !!!! Til hvers ? Það er löngu búið að finna uppá sólarorkunni ! Og svo rigndi á þá nánast allann tímann, þeim hefði gengið betur með að vera á vatnsknúnum þríhjólum !
Ég sjálfur lennti nánast í dauðaslysi vegna þessara vanvita !
Og síðast en alls ekki síst eru það puttalingarnir, en þeir eru langlægsta form túrista !
Koma hingað með niðursuðudósirnar sínar frá Þýskalandi í bakpokanum og tíma ekki að kaupa sér far með rútu eða öðrum almenningssamgöngum, og dirfast svo að gefa manni fokk merki ef að maður tekur þá ekki uppí !!!
Svona óþjóðalýð á handtaka á staðnum og raka undir höndunum og láta það vinna fyrir farinu heim með Bakkafossi með uppvaski og skúringum !


Satan.

16.7.05

Ég er.......


Satan
Originally uploaded by satan.


..... án efa frekar slappur bloggari, um það þarf ekki að efast.
Hvað hef ég mér til málsbóta ?
Jú, áhugaleysið hefur stundum plagað mig.
Nú alltof oft hefur þessi blogger.com síða verið að gera mig vitlausan með hægagangi og leiðindum.
Og stundum hefur maður bara ekkert að segja um hlutina.
Og þannig er nú bara það.
Látið mig svo bara í friði !



Satan.

Trúin


bachelorpriest
Originally uploaded by satan.


George Carlin er mikill snillingur og einn vinsælasti uppistandarinn í USA í mörg ár.
Hann lét hafa þetta eftir sér :
Ég verð bara að segja það hreint út. Þegar kjaftæði er annarsvegar, pípandi, kolruglað kjaftæði, þá verðum við hreinlega að taka ofan fyrir fyrir ævarandi heimsmeisturum falskra loforða og ýktra fullyrðinga, trúarbrögðunum. Þau eiga sér engan keppinaut. Ekki nokkurn. Trúarbrögðin. Þau eiga sér þá almögnuðustu lygasögu sem nokkurntíma hefur verið sögð. Spáið bara í það. Trúarbrögðin hafa í alvöru náð að sannfæra fólk um að það sé til ósýnileg mannleg vera sem býr í himninum og fylgist með öllum gjörðum okkar, hverja mínútu hvers einasta dags. Og þessi mannvera hefur útbúið sérstakan tíu atriða lista yfir það sem hann vill ekki að við aðhöfumst. Og ef við gerum eitthvað sem er á listanum hefur hann útbúið handa okkur sérstaka vistarveru fulla af eldi og reyk, bruna, pyntingum og angist og þangað sendir hann okkur til að hafast við og kveljast og brenna og kafna og gráta til eilífðarnóns.

En hann elskar okkur. Hann elskar okkur og þarfnast peninga. Alltaf skal hann þarfnast peninga! Hann er almáttugur og alvitur, en af einhverjum ástæðum kann hann ekkert með peninga að fara. Trúarbrögð afla tekna upp á milljarða og aftur miljarða og borga ekki neina skatta, en þurfa alltaf aðeins meiri peninga. Talandi um góða lygasögu. Andskotinn hafi það!


Satan.