2.5.05
Sin City
Ég horfði á þessa mynd í gærkveld, hún er gerð eftir myndasögum Franks Miller sem að ég verð að játa að ég þekki ekki.
Ég minntist á þessa mynd í bíó pósti 30. Mars, enda er ég búinn að bíða spenntur eftir myndinni nokkuð lengi.
Þessi mynd var frumsýnd í USA fyrir tæpum mánuði síðan en er ekki væntanleg í bíó hér fyrr en í byrjun Júní, sem er annsi slappt. Þannig að ég neiddist til að sjá myndina með mínum aðferðum og sé ekki eftir því þó svo að þetta sé mynd sem gaman væri að sjá á stóru tjaldi.
Nenni ekki að fara útí söguþráðinn hér en í myndinni leika fullt af flottum leikurum bæði vel þekktum og svo upprennandi stjörnum.
Ení vei, fínasta mynd sem stóð vel undir væntingum.
8/10
Satan.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli