21.5.05
Selma
Fyndið hve bitur Gísli Marrrteinn er útí frændþjóðir sem gefa hvorri annari stig eins og að Kýpur gaf Grikklandi 12 stig og öfugt, og Rússland gaf Hvíta Rússlandi 12 stig og öfugt, hann meira að segja hló og sagði "já þetta kemur gríðarlega á óvart....eða hitt þó heldur " En þegar Ísland gaf Danmörku 10 stig og Noregi 12 stig þá var það ekkert nema eðlilegt !
Annars verð ég að játa að mörg laganna unnu á í keppninni, lög sem mér fannst hræðileg við fyrstu og aðra hlustun voru í kvöld bara nokkuð góð, allavega betri en íslenska lagið sem var mjög dapurt þegar á hólminn var komið, virkaði máttlaust og ekki var klæðnaðurinn að hjálpa til.
Líklega verður undankeppni haldin hér á landi næst svo að það verður gaman að sjá hvað verður.
Satan.
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli