30.5.05
White Stripes rokka
White Stripes hafa með nýjustu plötu sinni sýnt mér velþóknun sína með því að láta hana heita " Get Behind Me Satan "
Kann ég þeim beztu þakkir og mun ég að sjálfsögðu aðstoða þau á framabrautinni eins og ég hef gert með svo marga.
Satan.
26.5.05
Bolton
Yeeess!!
Ég er búinn að kaupa miða á tónleika þessa mikla söngvara sem haldnir verða hér í Laugardalshöllinni seinni part sumars !
Ekki nóg með það, heldur reddaði ég aukalega 4 miðum sem þið vinir mínir verðið að bítast um, fyrstur kemur..........
Hver fær ekki gæsahúð þegar að stórsmellir eins og þessir hljóma :
Georgia on my mind
How am i suposed to live without you
Back on my feet again
Loving you is like drinking milk
Stuff your bags and marry me
Comb my fluffy hair
Let me paint your toenails
Og svona gæti maður lengi talið, maðurinn á endalaust mikið af góðum lögum.
Þið sem viljið miða látið mig vita, og ég gæti orðið svo góður að redda ykkur á tónleika ársins.
Satan.
25.5.05
Rafael Benitez
Rafael Benitez sagði fyrir leikinn í kvöld þegar að hann var spurður hvers vegna hann hafi ekki látið liðið æfa vítaspyrnur.
"Vandamálið er ekki spyrnurnar sem slíkar heldur pressan sem fylgir því að taka víti, það er ekki hægt að æfa það sérstaklega," sagði Benitez.
Scnillingur !
Satan.
Campions !!!!!!
Hvað getur maður sagt ?
Hvílíkur leikur !
Hvílíkur viðsnúningur !
Hungrið sigraði reynsluna !
Ég geng aldrei einn !
Satan.
22.5.05
Eurovision. 16. sætið enn einu sinni !
Svona fór undankeppnin sem Selma tók þátt í fyrir okkar hönd :
Danir og Moldavíumenn gáfu Íslandi 10 stig, Norðmenn gáfu 8 stig, Svíar 7, Andorra 6 stig, Ísraelsmenn 4 stig, Bretar 3 stig, Finnar og Slóvenar 2 stig en aðrar þjóðir ekkert.
Íslendingar gáfu Norðmönnum 12 stig og Dönum 10 stig eins og í úrslitunum í kvöld.
Lokastaðan í forkeppninni varð þessi:
Rúmenía 235 stig
Moldavía 207
Danmörk 185
Króatía 169
Ungverjaland 167
Noregur 164
Ísrael 158
Sviss 114
Makedónía 97
Lettland 85
Pólland 81
Slóvenía 69
Hvíta-Rússland 67
Írland 53
Holland 53
Ísland 52
Portúgal 51
Finnland 50
Búlgaría 49
Eistland 31
Austurríki 30
Belgía 29
Andorra 27
Mónakó 22
Litháen 17
Danir og Moldavíumenn gáfu Íslandi 10 stig, Norðmenn gáfu 8 stig, Svíar 7, Andorra 6 stig, Ísraelsmenn 4 stig, Bretar 3 stig, Finnar og Slóvenar 2 stig en aðrar þjóðir ekkert.
Íslendingar gáfu Norðmönnum 12 stig og Dönum 10 stig eins og í úrslitunum í kvöld.
Lokastaðan í forkeppninni varð þessi:
Rúmenía 235 stig
Moldavía 207
Danmörk 185
Króatía 169
Ungverjaland 167
Noregur 164
Ísrael 158
Sviss 114
Makedónía 97
Lettland 85
Pólland 81
Slóvenía 69
Hvíta-Rússland 67
Írland 53
Holland 53
Ísland 52
Portúgal 51
Finnland 50
Búlgaría 49
Eistland 31
Austurríki 30
Belgía 29
Andorra 27
Mónakó 22
Litháen 17
21.5.05
Selma
Fyndið hve bitur Gísli Marrrteinn er útí frændþjóðir sem gefa hvorri annari stig eins og að Kýpur gaf Grikklandi 12 stig og öfugt, og Rússland gaf Hvíta Rússlandi 12 stig og öfugt, hann meira að segja hló og sagði "já þetta kemur gríðarlega á óvart....eða hitt þó heldur " En þegar Ísland gaf Danmörku 10 stig og Noregi 12 stig þá var það ekkert nema eðlilegt !
Annars verð ég að játa að mörg laganna unnu á í keppninni, lög sem mér fannst hræðileg við fyrstu og aðra hlustun voru í kvöld bara nokkuð góð, allavega betri en íslenska lagið sem var mjög dapurt þegar á hólminn var komið, virkaði máttlaust og ekki var klæðnaðurinn að hjálpa til.
Líklega verður undankeppni haldin hér á landi næst svo að það verður gaman að sjá hvað verður.
Satan.
365
Fjölmiðlarisinn "365 viðurstyggðir" eru að fara að opna nýja sjónvarpsrás. Verður markhópur þessarar nýju stöðvar ungt fólk, og hafa hugsuðir stöðvarinnar náð að lokka hina sí ungu Völu Matt til starfa við nýju stöðina.
Já þeir vita greinilega hvað unga fólkið vill !
Satan.
19.5.05
3.5.05
2.5.05
Sideways
Eftir að hafa horft á þessa mynd langar mann helst til að skrá sig á vínsmökkunar námskeið.
Mjög fín mynd, fjallar á fyndinn hátt um frekar sorglega karaktera.
Vann Oskar fyrir besta handrit byggt á áður útkominni sögu.
Var tilnefnd til Oskars sem bezta myndin en tapaði fyrir Million Dollar Baby, sjálfur get ég ekki gert upp á milli þeirra.
Alexander Payne var tilnefndur til Oskars sem bezti leikstjóri en tapaði fyrir Clint Eastwood.
Thomas Haden Church var líka tilnefndur sem bezti leikari í aukahlutverki en tapaði fyrir Morgan Freeman.
Virginia Madsen var líka tilnefnd sem bezta leikkona í aukahlutverki en tapaði fyrir Cate Blanchett.
Flott mynd.
8/10
Satan.
Million Dollar Baby
Ég horfði á þessa Oskars verðlauna mynd á laugardagskveld og er skemmst frá því að segja að hún er mjög góð.
Clint Eastwood fékk Oskar fyrir leikstjórn.
Hillary Swank fékk Oskar fyrir aðalhlutverk kvenna
Morgan Freeman fékk Oskar fyrir aukahlutverk karla
og myndin var valin bezta myndin á Oskarsverðlauna kveldinu.
Ekki slæmt það.
Fín mynd og hana nú.
8/10
Satan.
The Amityville Horror
Já sem horror fan þá " neyðist " ég stundum til að taka smá sjénsa með myndir, og þar sem horror myndir eru oftast dæmdar til að klikka þá gæti einhver haldið að ég sé haldin einhverju lélegra mynda fettishi, sem ég líklega er, allavega smá.
Þessi mynd er endurgerð myndar síðan 1979 og á að vera byggð á "sönnum atburðum".
Sagan fjallar um fallega fjölskyldu sem flytur inn í hús eitt sem á ekki fallega sögu...bla bla bla......
Sem sagt lítið varið í þessa mynd, en ég vissi það svo sem.
5/10
Satan.
Sin City
Ég horfði á þessa mynd í gærkveld, hún er gerð eftir myndasögum Franks Miller sem að ég verð að játa að ég þekki ekki.
Ég minntist á þessa mynd í bíó pósti 30. Mars, enda er ég búinn að bíða spenntur eftir myndinni nokkuð lengi.
Þessi mynd var frumsýnd í USA fyrir tæpum mánuði síðan en er ekki væntanleg í bíó hér fyrr en í byrjun Júní, sem er annsi slappt. Þannig að ég neiddist til að sjá myndina með mínum aðferðum og sé ekki eftir því þó svo að þetta sé mynd sem gaman væri að sjá á stóru tjaldi.
Nenni ekki að fara útí söguþráðinn hér en í myndinni leika fullt af flottum leikurum bæði vel þekktum og svo upprennandi stjörnum.
Ení vei, fínasta mynd sem stóð vel undir væntingum.
8/10
Satan.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)