25.4.05

Muuuuu

Af hverju eru mjólkurvöru auglýsingar alltaf svona lélegar ?
Sú sem fer mest í taugarnar á mér er AB Mjólkur auglýsing ein sem er alltof oft sýnd.
Hún er þannig að hún gerist á einhverri skrifstofu þar sem kona og karl eru að vinna saman, allt í einu dregur kvensan upp AB mjólk og byrjar að gefa daðrandi augngotur á gaurinn sem fellur auðvitað kylliflatur fyrir þessu ómótstæðilega daðri.
Rjúka þau upp úr stólunum og út úr skrifstofunni og upp stigaganginn og upp á þak þar sem þau dilla sér hlæandi með AB mjólkina æðislegu.
Djöfulsins leiðindi, og það sem toppar ömurlegheitin er að með þessum skrifum er ég búinn að sanna að helvítis auglýsingin virkar !!
Djöfull er maður einfaldur.


Satan.

Engin ummæli: