12.4.05

Bágt

Lennti í þerri óskemmtilegu lífsreynslu í dag að vera 3. bíll í 4. bíla árekstri.
Var stopp á rauðu ljósi á gatnamótum Reykjanesbrautar og Bústaðarvegar, einn bíll fyrir framan mig og var svo sem ekkert að spá í hvað var að gerast fyrir aftan mig fyrr en alltíandskotanum heljarinnar högg aftan á mig og höfuðið á mér skall í afturrúðunni á vinnubílsflakinu sem ég var á, en sá er tveggja sæta Subaru pallbíll og gat hann ekki vesnað mikið við aftanástuðið. Eftir augnabliks furðu (vönkun) fattaði ég hvað hafði gerst, fór út úr bílnum til að athuga skaðan og sá að bíllinn fyrir framan mig var lítið tjónaður, en bíllinn sem var á milli mín og þess sem orsakaði allt helvítis havaríið var verulega illa farinn að aftan og framan. Þegar að ég lít inn í bílinn sem fór verst út úr þessu sé ég mér til hryllings að konan sem er undir stýri liggur fram á stýrið, það leit sannarlega ekki vel út, ég tek upp gsm síman minn og slæ inn 112........og reyni að opna hurðina hjá konunni en hurðin var stíf í eftir áreksturinn en með átaki tekst mér að opna hurðina.......þá er svarað hjá 112 og ég segi við þann sem svaraði að það hafi orðin 4. bíla árekstur og það þurfi sjúkrabíl og lögreglu strax.
Meðan að ég er að tala við 112 sé ég að konan er ekki eins illa sködduð og í fyrstu leit út fyrir, með síman við eyrað spyr ég konuna hvort hún sé slösuð, hún svarar sem betur fer nei ég held ekki og er hágrátandi. 112 vilja að það komi sjúkrabíll just in case og ekkert nema gott um það að segja. Örfáum mínútum síðar heyrist sírenuvæl og lögreglan og sjúkrabíllinn koma nánast á sömu sekúndunni, en á meðan við biðum kom fullorðin kona útúr bílnum sem orsakaði áreksturinn og spyr hvort einhver hafi meiðst, eftir að hafa fengið svarið við því segir hún " aumingja gamli maðurinn....hann á ekki að vera að keyra bíl" og er að tala um háaldraðan manninn sinn sem situr sem fastast undir stýri í illa förnum bílnum.
Sá gamli reyndist svo þegar að skýrslutökunni kom varla geta gengið sökum aldurs, var á tveim hækjum og var örugglega á níræðis aldri. Mikið rosalega vorkenndi ég gamla manninum, hann minnti mig svolítið á pabba minn enda á svipuðum aldri og orðin lúinn. Þegar að inn í lögreglubílinn var komið baðst karl greyið afsökunar skjálfandi og hálf brostinni röddu og var í svo miklu uppnámi að hann gat varla sagt hvar hann ætti heima, við vorkendum honum öll.
Jæja, sem betur fer slasaðist engin illa í þessu öllu saman, en konan sem fékk mesta höggið ætlaði á bráðavaktina í tjékk og reikna ég með að hún hafi ekki verið illa meidd, allavega virtist henni mest vera brugðið.
Ég fór líka á bráðavaktina og telst vera með vægan heilahristing og er bara lukkulegur með það, enda er ég viss um að það hefði farið illa fyrir mér ef að konu greyið hefði ekki verið á milli mín og gamla mannsins.


Satan.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þar sem þú ert, þar gerast hlutirnir

M7

M3 sagði...
Þessi athugasemd hefur verið fjarlægð af stjórnanda bloggs.
M3 sagði...

Jajhérna og dúddemía.... Og þú sagðir ekki orð þegar þú sast hérna við hliðina á mér áðan....spurning hvort það hafi verið vegna heilakokkteilsins eða vegna leiksins. og bæðevei til hamingju kúturinn minn og tek undir með M2um..gott að þú komst frekar heill út úr þessum skaða.