19.4.05

The Interpreter


Picture 1
Originally uploaded by satan.


Jamm, fór ásamt fríðu föruneiti að sjá þessa mynd í bíó síðasta fimmtudagkveld.
Ég skal vel játa að ég gerði mér vonir um að hér væri fín mynd á ferðinni, enda ekki ástæða til að ætla annað, leikstjórinn og aðalleikarinn og reyndar aðalleikkonan hafa öll fengið æðstu viðurkenningu fyrir leik og leikstjórn.
Sydney Pollack, leikstjóri hefur þrisvar sinnum verið tilnefndur til Oskars verðlaunanna og unnið einu sinni fyrir myndina Out Of Africa (1985). 12 sinnum hefur leikari/leikkona verið tilnefnd til Oskars verðlauna eftir að hafa verið undir hans leikstjórn, ekki slæmt það.
Nicole Kidman, er ein allra vinsælasta leikkona samtímans og hefur verið verðlaunuð margoft fyrir leik t.d. tvisvar verið tilnefnd til Oskars og unnið einu sinni fyrir The Hours (2002)
Sean Penn, sem er reyndar einn af mínum uppáhalds leikurum er líka margverðlaunaður fyrir sinn leik, t.d. fjórum sinnum verið tilnefndur til Oskars og unnið einu sinni fyrir myndina Mystic River (2003).

Sem sagt allt er hér til staðar til að gera góða mynd en það gerist samt bara ekki. Myndin er laaaangdreginn og fyrirsjáanleg og meira að segja svolítið væminn.
Myndin olli mér miklum vonbrigðum þar sem maður fer ekki svo oft í bíó, heldur reynir að velja vel það sem maður ætlar að sjá.
Það klikkaði í þetta skiptið.
6/10

Satan.

Engin ummæli: