Ég verð að játa að síðast liðið ár eða rúmlega það hef ég verið að hlusta oftar á Rás 2 en áður, líklega vegna hækkandi aldurs og heilarýrnunar, og oftast er ég nokkuð ánægður með dagskrárgerðar fólkið á rásinni fyrir utan Gest Einar sem fær alltof góðan part morgunsins til að flytja fréttir af Akureyringum og nærsveitar fólki mismerkilegu, og spilar þess á milli lög með Bítlunum og Rollingunum. Á eftir Gesti Einari kemur svo Hrafnhildur Halldórsdóttir með sinn þátt fram að hádegisfréttum, Hrafnhildur er fín og spilar allskonar músík fyrir allar tegundir af fólki, og er í góðu sambandi við sína hlustendur. Eftir hádegisfréttum byrjar svo Poppland í umsjón ýmist Óla Palla, Freys eða Guðna Márs Henningssonar og fyrir mína parta stendur Freyr þeim fremstur. Og hér kemur svo ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa þetta raus allt saman : í dag var Guðni Már með Popplandið, þannig er að Guðni Már lifir svolítið í þerri trú að hann sé í senn kóngur og forseti popplands og spilar því mikið til það sem honum finnst góð músík, sem er eiginlega allt frá hamp reykinga og hópríðinga kommúnu tímabilinu í kringum 1970. Ok, ég viðurkenni vel að smekkur manna er misjafn og líklegt er að okkur sé ofarlega í huga tónlistin sem var vinsæl þegar að við vorum á unglingsaldri og svona í gegnum helsta djamm tímabilið, en kommonn, öllu má nú ofgera og td. í dag spilaði Guðni lög með Leonard Cohen í ca. klukkutíma eða jafnvel lengur, ég bara gafst upp á því að hlusta....reyndi meira að segja að hringja 2 sinnum í kallinn til að fá hann ofan af ruglinu, en ekkert gekk ! Að vísu...ef að það er einhver afsökun fyrir Guðna þá varð Leonard 70 ára í dag, en mér finnst það ekki afsaka neitt.
Að þessu leiti er Óli Palli lítið skárri, neitar td. að spila suma tónlistarmenn vegna persónulegs óþols á viðkomandi. Td. hefur verið marg reynt að fá óskalög spiluð með Scooter en það er fyrir neðan virðingu Óla Palla þrátt fyrir að Scooter sé vinsæll hjá ungu fólki og er að koma að halda aðra tónleika sína á klakanum næstunni.
Þá er bara að spyrja, er Rás 2 ekki örugglega útvarp allra landsmanna eins og þeir þreytast ekki á að tala um ?
Svarið hlýtur að vera, Nei, alls ekki. Rás 2 er útvarp Óla og Guðna sem eru í senn kóngar og hirðfífl í landi sem heitir Poppland.
Satan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli