17.9.04

Damien Rice

Loksins lét ég verða af því að sækja diskinn "O" með Damien Rice sem kom út á síðasta ári og hefur fengið afbraggðs dóma og er af mörgum talin vera með betri útgáfum síðasta árs og það jafnvel þessu ári líka.
Þar verð ég að vera sammála því að eftir að diskurinn var í húsi ca kl 9 í gærkveld er ég búinn að hlusta á hann þrisvar sinnum og djöfull er hann góður, langt síðan að maður kolfellur svona fyrir heilum disk. Í heild er diskurinn mjög lágstemmdur og rólegur, og varla önnur hljóðfæri notuð en kassagítar og selló nema í örfáum undantekningum.
Í nokkrum lögum syngur Lisa Hannigan með kallinum og er það mjög vel gert, og hún spilar víst líka á kassagítar og selló.
En eins og rætt hefur verið um milli okkar félaganna er Damien Rice að koma aftur á klakann til að halda tónleika í Nasa núna fimmtudag 23 Sept. Síðustu tónleikar hans voru í Nasa 19 mars síðastliðinn og þóttu með því betra sem á klakanum hefur sést, en þar var hann einn með kassagítarinn og náði víst magnaðri stemmningu í húsið þannig að líklegt er að margir þerra sem þar voru munu ætla sér aftur núna. Í þetta skiptið kemur Lisa Hannigan með honum og verður gítarinn hennar og sellóið með í för þannig að ég mundi ætla að þessir tónleikar verði í engu áhrifa minni en þeir síðustu, jafnvel sterkari.
Miðasalan hefst á morgun laugardag 18 sept í Skífunni Laugarvegi 26 kl 10.
Ég er að deyja mig langar svo, ég held að þetta verði ógleymanlegt kvöld.


Satan.

Engin ummæli: