16.9.04

Ástin !

Ástin þekkir engin takmörk og því fékk Rúmenskur ( rúm elskur ) maður að kynnast þegar að eiginkona hans reif undan honum eistun vegna gruns...já gruns um framhjáhald. Maðurinn náði að hringja í sjúkrabíl áður en að hann missti meðvitund.
Það tók 10 klst. að græða kúlurnar aftur á kallinn sem segir að hann ætli ekki að kæra konu sína fyrir athæfið.
„Ég myndi nú ekki segja að hún sé sérstaklega sterk kona, en hún var alveg brjáluð og virtist fá ofurmannlega krafta,“ segir maðurinn um atburðinn. „Sársaukinn var ólýsanlegur.“ Karlinn segir konu sína afskaplega tilfinningaríka, og bætti við að hann elskaði hana enn og vildi því ekki kæra hana. He he he....já ástin getur verið yndisleg...if you have the balls !


Satan.

Engin ummæli: