30.9.04

Nóg !

Jæja núna er komið nóg, ég ætla að skrifa uppsagnarbréf og skila til yfirmanns míns á næstu dögum !
Uppsögnin mun taka gildi um mánaðarmótin okt-nóv.
Ástæða ?
Tja......þegar að maður er farinn að taka við skipunum frá simpasa......er maður þá ekki kominn á krossgötur í sínu lífi ?



Satan.

29.9.04

Bush !

President Bush was visiting a primary school and he visited one of the classes. They were in the middle of a discussion related to words and their meanings. The teacher asked the President if he would like to lead the discussion on the word "tragedy".

So the illustrious leader asked the class for an example of a "tragedy".
One little boy stood up and offered:

"If my best friend, who lives on a farm, is playing in the field and a tractor runs over him and kills him, that would be a tragedy."

"No," said Bush, "that would be an accident."

A little girl raised her hand: "If a school bus carrying 50 children drove over a cliff, killing everyone inside, that would be a tragedy."

"I'm afraid not," explained the president. "That's what we would call a great loss."

The room went silent. No other children volunteered. Bush
searched the room.

"Isn't there someone here who can give me an example of a tragedy?"

Finally at the back of the room a small boy raised his hand.

In a quiet voice he said: "If Air Force One carrying You and Mrs. Bush was struck by a "friendly fire" missile and blown to smithereens, that would be a tragedy."

Fantastic!" exclaimed Bush. "That's right. And can you tell me why that would be tragedy?"

"Well," says the boy, "It has to be a tragedy, because it certainly wouldn't be a great loss and it probably wouldn't be an accident either."

23.9.04

Bíllausi dagurinn

Bíllausi dagurinn var í gær og var algert klúður eins og við var að búast. Eins og allir vita hefur enginn áhuga á að ferðast með strætó enda er strætó handónýtt fyrirbæri, og það fyrst og fremst varð til þess að bíllausi dagurinn gekk ekki bara upp heldur var í ofanálag sett met í árekstrum á bíllausa deginum eða 24 árekstrar, og til samanburðar voru " bara " 9 árekstrar í dag, og ekki var bíllausi dagurinn í dag....ja...nema á Ísafirði....en Ísfirðingar eru reyndar alltaf svolítið á eftir.



Satan.

22.9.04

Útvarp allra landsmanna ! Taka 2

Guess what ! Raggi Bjarna er sjötugur í dag !!!!



Satan

21.9.04

Útvarp allra landsmanna !

Ég verð að játa að síðast liðið ár eða rúmlega það hef ég verið að hlusta oftar á Rás 2 en áður, líklega vegna hækkandi aldurs og heilarýrnunar, og oftast er ég nokkuð ánægður með dagskrárgerðar fólkið á rásinni fyrir utan Gest Einar sem fær alltof góðan part morgunsins til að flytja fréttir af Akureyringum og nærsveitar fólki mismerkilegu, og spilar þess á milli lög með Bítlunum og Rollingunum. Á eftir Gesti Einari kemur svo Hrafnhildur Halldórsdóttir með sinn þátt fram að hádegisfréttum, Hrafnhildur er fín og spilar allskonar músík fyrir allar tegundir af fólki, og er í góðu sambandi við sína hlustendur. Eftir hádegisfréttum byrjar svo Poppland í umsjón ýmist Óla Palla, Freys eða Guðna Márs Henningssonar og fyrir mína parta stendur Freyr þeim fremstur. Og hér kemur svo ástæðan fyrir því að ég ákvað að skrifa þetta raus allt saman : í dag var Guðni Már með Popplandið, þannig er að Guðni Már lifir svolítið í þerri trú að hann sé í senn kóngur og forseti popplands og spilar því mikið til það sem honum finnst góð músík, sem er eiginlega allt frá hamp reykinga og hópríðinga kommúnu tímabilinu í kringum 1970. Ok, ég viðurkenni vel að smekkur manna er misjafn og líklegt er að okkur sé ofarlega í huga tónlistin sem var vinsæl þegar að við vorum á unglingsaldri og svona í gegnum helsta djamm tímabilið, en kommonn, öllu má nú ofgera og td. í dag spilaði Guðni lög með Leonard Cohen í ca. klukkutíma eða jafnvel lengur, ég bara gafst upp á því að hlusta....reyndi meira að segja að hringja 2 sinnum í kallinn til að fá hann ofan af ruglinu, en ekkert gekk ! Að vísu...ef að það er einhver afsökun fyrir Guðna þá varð Leonard 70 ára í dag, en mér finnst það ekki afsaka neitt.
Að þessu leiti er Óli Palli lítið skárri, neitar td. að spila suma tónlistarmenn vegna persónulegs óþols á viðkomandi. Td. hefur verið marg reynt að fá óskalög spiluð með Scooter en það er fyrir neðan virðingu Óla Palla þrátt fyrir að Scooter sé vinsæll hjá ungu fólki og er að koma að halda aðra tónleika sína á klakanum næstunni.
Þá er bara að spyrja, er Rás 2 ekki örugglega útvarp allra landsmanna eins og þeir þreytast ekki á að tala um ?
Svarið hlýtur að vera, Nei, alls ekki. Rás 2 er útvarp Óla og Guðna sem eru í senn kóngar og hirðfífl í landi sem heitir Poppland.



Satan.

19.9.04

Þakkir...

Fær M2 fyrir að bjóða hinum M'unum til sín á föstudagskveld, gríðarlega gaman eins og alltaf !
Aðdáunina fær hinnsvegar M5 fyrir að sjá til þess að koma umsóknum í GR loks í hendur M2 og M4 og fyrir að taka við þeim aftur undir skrifuðum, nú verður spennó að sjá hversu langan tíma það tekur að koma sneplunum í hendur manna í GR : )


Satan.

Tyra Banks

Tyra Banks fær prik fyrir að hafa ofur trú á samstarfsfólki sínu í þáttunum Americas Next Supermodel.
Frökenin sagði um förðunar púffterinn sinn " he's so talented.....he can do more than makeup"
Já, þetta comment segir líklega meira um hennar gáfur en förðunar gaursins !


Satan.

Damien Rice taka 2

Það seldist upp á tónleikana á 20 mín enda hafði löng biðröð myndast á Laugarveginum fyrir opnun á laugardagsmorgun.
Bögger !
Svona er lífið.


Satan.

17.9.04

Damien Rice

Loksins lét ég verða af því að sækja diskinn "O" með Damien Rice sem kom út á síðasta ári og hefur fengið afbraggðs dóma og er af mörgum talin vera með betri útgáfum síðasta árs og það jafnvel þessu ári líka.
Þar verð ég að vera sammála því að eftir að diskurinn var í húsi ca kl 9 í gærkveld er ég búinn að hlusta á hann þrisvar sinnum og djöfull er hann góður, langt síðan að maður kolfellur svona fyrir heilum disk. Í heild er diskurinn mjög lágstemmdur og rólegur, og varla önnur hljóðfæri notuð en kassagítar og selló nema í örfáum undantekningum.
Í nokkrum lögum syngur Lisa Hannigan með kallinum og er það mjög vel gert, og hún spilar víst líka á kassagítar og selló.
En eins og rætt hefur verið um milli okkar félaganna er Damien Rice að koma aftur á klakann til að halda tónleika í Nasa núna fimmtudag 23 Sept. Síðustu tónleikar hans voru í Nasa 19 mars síðastliðinn og þóttu með því betra sem á klakanum hefur sést, en þar var hann einn með kassagítarinn og náði víst magnaðri stemmningu í húsið þannig að líklegt er að margir þerra sem þar voru munu ætla sér aftur núna. Í þetta skiptið kemur Lisa Hannigan með honum og verður gítarinn hennar og sellóið með í för þannig að ég mundi ætla að þessir tónleikar verði í engu áhrifa minni en þeir síðustu, jafnvel sterkari.
Miðasalan hefst á morgun laugardag 18 sept í Skífunni Laugarvegi 26 kl 10.
Ég er að deyja mig langar svo, ég held að þetta verði ógleymanlegt kvöld.


Satan.

16.9.04

Ryder Cup !

Andskoti er ég fúll yfir því að Ryder Cup er ekki sýnt á Ruv ! Þessir andskotar á Ruv eru búnir að kasta frá sér þessu snilldar golf móti vegna fjárþurfðar ! Kannski að þeir hefðu átt að spara svolítið með því að minnka eyðsluna við Ólympíuleikanna, td. með því að senda aðeins færri þuli út til Grikklands. Það hefði verið hægt að láta upptjúnnaða gaurinn sem lýsti frjálsíþróttunum lýsa öllu draslinu enda maðurinn æstari en andskotinn og hefði leikið sér að lýsa öllu sem fyrir augu bar í Aþenu, og spara Ruv stórfé í leiðinni !
Aumingjar !!


Satan.

Ástin !

Ástin þekkir engin takmörk og því fékk Rúmenskur ( rúm elskur ) maður að kynnast þegar að eiginkona hans reif undan honum eistun vegna gruns...já gruns um framhjáhald. Maðurinn náði að hringja í sjúkrabíl áður en að hann missti meðvitund.
Það tók 10 klst. að græða kúlurnar aftur á kallinn sem segir að hann ætli ekki að kæra konu sína fyrir athæfið.
„Ég myndi nú ekki segja að hún sé sérstaklega sterk kona, en hún var alveg brjáluð og virtist fá ofurmannlega krafta,“ segir maðurinn um atburðinn. „Sársaukinn var ólýsanlegur.“ Karlinn segir konu sína afskaplega tilfinningaríka, og bætti við að hann elskaði hana enn og vildi því ekki kæra hana. He he he....já ástin getur verið yndisleg...if you have the balls !


Satan.

13.9.04

Verkur

Fór í vinnuna í morgun eftir allt of laaaangt bakeymsla frí, bara til að uppgögga að ég er ekki orðin nógu góður : (
Eins og það getur nú verið gaman að vera í fríi þá er þetta nú alveg komið nóg.
Spurning hvort að svert fyllerí sé ekki bara svarið ?



Satan

10.9.04

Byssu bullur

Ég heyrði í útvarpinu viðtal við formann byssubullnafjélags þroskaheftra í gær, þar var hann að tala um að vegna þessa hræðilega Rjúpnamorða banns eru byssubullur farnir af míga höglum yfir allt sem er með vængi svo að konur sem eru á túr eru í stór hættu !
Hvað er eiginlega í höfðinu á þessum greyum ?
Er þetta virkilega svona erfitt fyrir þá ?
Þeir tala allavega um að þetta sé svo erfitt fyrir þá að geta ekki plaffað niður allt fleygt, að það sé líkt því að þeim sé bannað að pissa.....bara verða að halda í sér í þessi 3 ár, sem er auðvitað ekki hægt og endar með því að þeir bara springi og mígi yfir allt og alla, ég meina Lóan og Spóinn eru orðnir vinsælastu forréttir á borðum bullnana svo er Gæs í aðalrétt og ristað berjalyng í eftirrétt því að lyngið er það sem kemst næst rjúpnabraggði !
Fussum svei !


Satan.

Neðansjavar horror !

Eftir annars vel lukkað gærkveld áhvað ég að horfa á Danskan þátt sem ég tók upp á Ruv í gærkveld. Þáttur þessi heitir "Hvað Veistu" og fjallar um allskonar tækninýungar, sem sagt einhverskonar Nýjasta tækni og vísindi þerra bauna. Þessi fyrsti þáttur fjallaði um neðansjávar myndatökur og kortlagningu botnlags sjávar...BORING !!!!!! Djöfullinn hafi það, það vita það allir sem allmennt eru ekki hálfvitar að fyrsti þáttur í seríu þarf...nei verður að vera svolítið áhugaverður svo að maður annars nenni að horfa á næstu þætti og þessi var bara leiðinlegur ! Rosa merkilegt að sjá far eftir akkeri....vúhúúú....hvílíkt stuð !
Næsti þáttur á að fjalla um hljóðhönnun og það er eins gott að hann verði skárri en þessi síðasti, annars neyðist ég til að skrifa annan póst hérna, og það vilja Danir ekki !
Hvað veistu ? Ég veit hvernig á að hraðspóla yfir leiðinlega þætti !


Satan.