1.6.04

Snilldar helgi

Ný liðin hvítasunnuhelgi var helber gæði í gegn, vinur vor M3 kom til landsins og hittumst við allir Móar ( nema M2 sem dissaði samkomuna fyrir auman " matarklúbb" vei honum...fussum svei ) heima hjá M5 sem eldaði gæðafæði hand oss, sem að sjálfsögðu var skolað niður með guðaveigum. Seint um nótt fórum við í bæinn svona rétt til að komast inn á einhverja búlluna áður en að lokun skemmtistaðanna yrði framkvæmd guði til dýrðar !
Á hvítasunnudag fór ég að spila golf ( ef að það er hægt að kalla mína spilamennsku golf ) ásamt M3,M5,M7. Með okkur röllti svo M2 sem var fullur iðrunar eftir að hafa Júdasað okkur kvöldið áður. Frábært veður í Grafarholtinu var svo bara forsmekkurinn að því sem á eftir kom, því að loknum 18 holum fór svo hópurinn í mat til M2 og frúar ( M2 enn að bæta fyrir svikin: ) Þar var grillaður kjúlli eins og M2 einn getur með tilheyrandi flottheitum og öli. Vorum það til tja......einhverstaðar ca 3-4 um nóttina ( drukkinn sko ) og þannig lauk þeim dýrðar degi. Mánudagurinn var svo rólegur og ljúfur, og mikið er gott að þetta verður stutt vika. Það eina góða sem þetta jesú bull hefur nokkurn tima gert gott, eru allir þessir frídagar.....Halleljúúúúga !

Satan.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Jamm snilldar helgi.

Maður er nú samt varla búinn að ná sér eftir að ná ekki tvennu með fjelaginu. :þ

Náði þó vonandikveldinu. Snilld solleiðis nokk.

Var nú samt á smá bummer eftir að hafa júdasað samkomuna og ákvað að komast að því hvaða óþokki ég væri eiginlega.
Jú jú, það var helvítið hann
Freddy Krueger
Hmm... gott á mig eða þannig. Hvet
ykkur til að tékka á þessu sjálfir

Ég efast stórlega um að ég sé eini bastarðurinn á svæðinu.

"Welcome to prime time, bitch!"

Múhahaha!

M2

M4 sagði...

Ég er Gollum......ekki slæmur félagsskapur það ; )