16.6.04

Skjaldarmerki....

Er búinn að vera að horfa á EM í Portugal eins og allir alvöru karlmenn gera þessa dagana. Og ég, eins mikill hugsuður og ég nú er, fór að pæla í því hversu merkin eða landslógóin sem knattspyrnu landsliðin bera á treyunum eru flott ( mjög karlmannleg pæling...ætti kannski að vera stílisti ) ég meina, skoðið svo viðurstyggðina sem Íslenska landsliðið er með hjá sér....KSÍ lógó með alveg ömurlega hallærislegum fótbolta svífandi yfir því !!!! http://ksi.is/ Ekki nema von að við getum ekkert.....við áttum aldrey séns !!
Mín tillaga er sú að við látum knattspyrnu fólkið okkar og jafnvel aðra íþróttamenn og konur bera skjaldarmerki okkar á búningum sínum, eins og t.d Englendingar gera með 3 ljón í sínu merki, Frakkar eru með sperrtan hana í sínu og Þjóðverjar eru með sitt skjaldarmerki á sínum búningum og Hollendingar líklega með tréklossa og túlipana í sínu......mjög kúl.
Reddum þessu nú sem fyrst.....eða eins og gáfaður maður saggði : Reynum allavega að lúkka eins og að við getum eitthvað ! Eða eitthvað svoleiðis.....

Satan.

Engin ummæli: