HVÍLÍKUR VIÐBJÓÐUR er Ghostigital ! Ég er barrasta næstum því orðlaus, en samt ekki alveg.
Ég fór ásamt fríðu föruneyti á Pixies tónleika á miðvikudagskveld, og við vorum komnir í salinn í Kaplakrika ca 20 mín yfir 8 sem þýðir að við þurftum að kveljast við að hlusta á hörmungarnar sem yfir fólkið gekk í ca 20 mín frá umræddri "hljómsvei attan skítalykt".
Alveg er mér fyrirmunað að skilja hvers vegna þeir fengu leyfi að prumpa þessari viðurstyggð yfir mannskapinn !
" ein fluga....tvær flugur....7 flugur.....56 flugur.....skrilljón flugur.... " Flottur texti !
Svo komu scnillingarnir í Pixies á svið rúmlega 9 og váááá, topp show ! Það væri gaman að vita hvað var í bjórnum hjá bassaskvísunni því að brosið fór ekki af henni alla tónleikana, en líklega finnst henni bara svo Ísland svo æðislegt : )
En ástæðan fyrir að ég er farinn að röfla hér er samt Ghostigital, það er hreint ekki hægt að þegja eftir að eyrum manns hefur verið nauðgað svona, þeir eru sannarlega eina góða ástæðan sem hægt er að gefa fyrir því að ekki eigi að byggja tónlistarhús !
Pixies lifi..húrra...húrra ...húrraaaa !
Satan.
1 ummæli:
Vá haleljúga amen og allir í kór.
Hér talar þú eins og út úr mínu rassgati.
Þvíílíkur viðbjóður, enda þurfti ekkert annað en þessa þvílíku snilld sem Pixies eru til þess að hreinsa ógeðið út úr andlegri minnisbók minni.
Ég held að það sé ljóst að þetta skoffín er ekki skarpasti hnífurinn í skúffunni.
M2
Skrifa ummæli