4.10.10

Útskriftarmyndin mín, dagur 3

IT'S A WRAP!!!!!!!!!

Já við náðum að ljúka þessu undir kvöldmatarleitið þrátt fyrir að fara aftur uppí Grafarvog til að taka allt aftur sem við tókum upp þar í gær, það efni var einfaldlega ónothæft vegna myrkurs.

Við byrjuðum kl 09 í morgun og var mæting góð og setti það tóninn fyrir daginn, ég sýndi tökumanninum mínum efnið sem við tókum upp í Grafarvogi seint í gær og viðraði áhyggur mínar með það efni, ekki þurfti neinar sannfæringar til að sjá að við yrðum einfaldlega að láta allt ganga upp til að geta farið aftur og tekið það efni upp aftur.

Ég hringdi í lyftuleiguna og fékk að hafa lyftuna annan dag og sjálfsagt mál var hjá íbúum Vættarborga að fá að taka þar annan daginn í röð. Nú varð að láta hendur standa fram úr ermum í Ölveri til að ná dagsbirtunni seinni partinn, það tókst og eftir stendur að ég er með meiriháttar flott efni til að gera það sem ég er að verða nokkuð viss um að verði skemmtileg mynd.

Sérstakar þakkir fær M5 fyrir að vera vinur í neyð.

Næsta mál er svo að fara á fimmtudaginn til Hafnar í Hornafirði og vera það í 4 daga við tökur á næstu mynd sem bekkurinn gerir, ég get ekki sagt að mér finnist neitt spennandi að eyða 11 - 12 klukkutímum sitjandi í bíl fram og til baka í því verkefni en svona er þetta stundum þegar gera á bíó : )

Nú ætla ég að hella mér uppá kaffi og skála fyrir sjálfum mér í Koníaki fyrir að vera búinn í tökum á myndinni minni : )

Skál!