3.10.10

Útskriftarmyndin mín, dagur 2

Dagur 2 liðinn og gekk allt vel, vorum reyndar lengur að en upphaflega stóð til en því má kenna um að crewið mitt mætti ekki á tilsettum tíma og 2 aðalleikararnir létu svo bíða eftir sér í seinnihlutann sem tekinn var upp í Grafarvogi seinni partinn í dag, þessar óþarfa tafir kostuðu okkur tæpa 2 tíma og mikilvæga dagsbirtu, vona að það komi ekki niður á endanlegri útkomu myndarinnar.

Við byrjuðum á því að taka senurnar með foreldrum aðalhetju myndarinnar hérna heima hjá mér, það gekk eins og áður sagði vel þrátt fyrir að við byrjuðum seinna en við ætluðum.
Eftir það fluttum við svo okkur um set yfir í Grafarvoginn þar sem við tókum upp senuna þar sem aðalhetjan okkar sækir aðaldömuna á deit. Þetta tókum við upp fyrir utan húsið hjá Georg bróður og hans fjölskyldu, þar var tekið vel á móti okkur, hellt uppá kaffi og okkur öllum boðið inn á meðan við biðum eftir aðalleikurunum, höfðingjar heim að sækja og kann ég þeim bestu þakkir fyrir allt í dag.

Við vorum svo búin á níunda tímanum í kvöld og byrjum svo aftur kl 9 í fyrramálið í Ölveri í Glæsibæ.
Þar verður lokahnykkurinn tekinn á morgun og alveg ófyrirsjáanlegt hvenær tökum lýkur á morgun.

Þetta er alveg að hafast, aðeins 1 dagur eftir, og þrátt fyrir að þetta sé gaman og spennandi þá verð ég dauðfeginn þegar ég get öskrað yfir lýðinn í lok dags á morgun........IT'S A WRAP!

1 ummæli:

M2 sagði...

Hótar þú bara vinum þínum með berjun?

Þú ættir kannski að fara að nota þetta á starfsfólkið líka?