2.10.10

Útskriftarmyndin mín, dagur 1

Fyrsti af 3 dögum lokið, og gekk vel.
Við byrjuðum í húsnæði Þykkvabæjar í Garðabæ kl 09 í morgun og kláruðum að ganga frá rétt fyrir kl 19 í kvöld.
Á þeim tíma settist ég ekki niður í svo mikið sem eitt augnablik og er bakið eftir því, samt ekkert sem gott kaffi og enn betra koníak getur ekki lagað : )
Aðeins meiri afslöppun á morgun, byrjum kl 14 og ættum að verða búin milli kl 19 og 20, kemur í ljós.

Ég er mjög ánægður með það sem tekið var upp í dag, þetta lúkkar vel og leikararnir flottir, skrítin tilfinning samt að upplifa söguna mína og pælingar svona ljóslifandi fyrir framan mann, absúrd jafnvel.

Gaman að þessu, þangað til næst.

2 ummæli:

M2 sagði...

Spennandi...
Er titillinn á meistarastykkinu etv. „Álfasögur“?

M4 sagði...

Reyndar ekki, en það hvarflaði alveg að mér að nota hluta af því sem tekið var upp í gær í nýja auglýsingu : )