10.5.10

50% rýrnun!

Í gærkveld kom afi konunar í mat til okkar, eins og vanalega þegar hann kemur til okkar í mat þá reyni ég að hafa eitthvað í matinn sem ég held að honum líki en fái kannski ekkert of oft.
Í þetta skiptið varð reykt folaldakjöt fyrir valinu og get ég ekki neitað því að mig drephlakkaði til að borða það sjálfur enda mjög langt síðan að slíkt hnossgæti hafði farið inn fyrir mínar varir.
Ég keypti rúllu af reyktu folaldakjöti í Krónunni, viktin á rúllunni var 1264gr sem ég taldi yfirdrifið nóg fyrir 3 fullorðna og 2 börn með kartöflum og meðlæti.
Rúlluna sauð ég svo eftir leiðbeiningum frá framleiðanda, þegar suðunni var lokið eftir c.a. 90 mín sá ég mér til mikillar furðu og vonbrigða að þessi myndarlega rúlla hafði rýrnað allsvakalega í suðunni, svo mikið að ég fyrir forvitnissakir ákvað að vikta hana.
Og viti menn og konur, rúllan hafði farið úr 1264 grömmun niður í 650 grömm!



Það finnst gömlum kjötverkanda eins og mér svolítið mikil afföll.

Hvað um það, kjötið bragðaðist hinsvegar vel og var etið upp til agna með kartöflum, Ora grænum og uppstú : )

1 ummæli:

M2 sagði...

Drasl!!!?
http://okursidan.blogspot.com/