Ég varð þeirrar gleði aðnjótandi að fara með M2 í golf á Hellu í gær, spáin var fín en þó verður að játast að þegar lagt var að stað úr bænum í gærmorgun var útlitið ekkert spes. En eins og nánast alltaf svíkur Strandarvöllur okkur ekki, rjómablíða og léttskýjað, ég náði meira að segja að sólbrenna pínu ; )
Á undan okkur fóru svo 3 manna teymi snillinga þannig að það má segja að Móar hafi hertekið völlinn þarna um morguninn.
Fyrri 9 voru ágætlega spilaðar að minni hálfu, en 3 pör á seinni 9 sáu svo til þess að maður yfirgaf svæðið með bros á vör, sérstaklega var gaman að para 18, held að mér hafi ekki tekist það áður : )
102 högg.
30 punktar.
Þakka M2 kærlega fyrir hringinn enda vandfundnari betri félagsskapur til að spila með : )
1 ummæli:
Takk fyrir hringinn sömuleiðis.
Skíta hringur hjá mér, en snilldar göngutúr ungvu að síður -- OG við duttum ekki neitt!
Meira en móarnir í fyrra hollinu gátu sagt. ;)
Skrifa ummæli