3.6.09

Conan : )

Jebb, nú er Jaaaaay Leno hættur og Conan O Brien tekinn við.
Það eru frábærar fréttir, hef aldrei fílað Leno neitt sérstaklega en Conan er alveg hrikalega fyndinn.
Nú var ég að enda við að horfa á fyrsta þáttinn hjá Conan og varð ekki svikinn, aðal gestur kvöldsins var hinn stórkostlegi snillingur Will Ferrell : )
Fyrsti þátturinn var með svolítið öðru sniði eðlilega og verður gaman að sjá næsta þátt þar sem Tom Hanks verður gestur kvöldsins, mikið djöfull byrjar þetta vel.
Það er nokkuð ljóst að ég á eftir að skipta yfir á Skjá Einn í næstu viku til að horfa á Conan.

2 ummæli:

M2 sagði...

Conan er sá lang fyndnasti/frumlegasti af þessum köllum. Vonandi heldur S1 áfram að kaupa þessa þætti.

M4 sagði...

Sammála : )