Nú eru orðin þó nokkur ár síðan ég fór að fá verki í mjóbakið (eins asnalegt og það nú er að segja að ég sé með mjótt bak).
Þegar óþægindin fóru að aukast var mér bent á að fara til Kírópraktors, það gæti örugglega hjálpað og það gerði það svo sannarlega.
Ég fór til þess manns sem fyrstur fékk starfsleyfi hér á landi, Tryggvi Jónasson heitir hann og til að gera langa sögu stutta þá náði hann að redda mér það vel að ég var eiginlega full hraustur á eftir.
Svo byrjaði verkurinn að koma aftur, og svo snemma á síðasta ári gerðist eitthvað sem tók þessi bakmeiðsli mín á nýtt og verra stig, mikið meiri verkur og þegar verst er þá get ég varla rétt úr mér og hvað þá gengið, missi máttinn í fæturna og fálma út í loftið til að reyna að grípa í eitthvað til að hreinlega hníga ekki niður, ömurlegt helvíti alveg.
Í dag fór ég aftur til Kírópraktors en ekki til þess sama, enda þegar ég fór til Tryggva síðasta sumar náðist eiginlega ekki nokkur bati.
Í dag fór ég til ungs manns sem rekur stofu ásamt öðrum manni, og þar tóku við allskonar mælingar, bólgu skönnun og loks röntgen myndataka.
Að koma í þessa skoðun miðað við þegar ég fór til Tryggva var álíka mikill munur og setja blóðsugur á mann til að berjast við sýkingu og svo að fá Pensilín í pillu formi.
Ekki ætla ég nú að gera lítið úr starfseminni hjá Tryggva, alls ekki enda var hann brautryðjandi fyrir aðra sem á eftir komu, en mig grunar að hann hafi staðnað, henn getur eflaust hjálpað mörgum en svo eru líklega aðrir sem þurfa eitthvað meira.
En eftir þessa skoðun í dag fylltist ég bjartsýni á að mínum vanda yrði reddað, en það á auðvitað eftir að koma í ljós.
Næsta mánudag á ég að mæta aftur og þá verður farið yfir það sem kom út úr mælingunum og meðferð hefst.
Þá er bara að krossa fingur og vona að ég fái ekki í bakið í leiðinni.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli