31.3.09

Leik rispu að ljúka

Undanfarnar 2 vikur hef ég mikið verið í því að ná mér í SAM, en það eru tímar sem ég verð að vinna með öðrum nemendum skólans til að ég geti lokið önninni, hver nemandi verður að skila inn 30 klt á hverri önn og er ég nú þegar búinn að ná því takmarki.
Þá aðstoða ég viðkomandi við þeirra verkefni en það fyndna er að enn hefur engin beðið mig um aðstoð við tæknihliðina á tökunum, heldur hef ég eingöngu verið að leika í viðkomandi myndum, sem mér leiðist auðvitað ekki.

Ég var að leika í mynd fyrir strák á 2 önn tæknisviðs í 14 klt á laugardag fyrir viku og svo tóku við 3 tökudagar, þó ekki í röð á annari mynd sem er fyrir strák sem er að útskrifast úr skólanum.
Í þessari mynd fékk ég að leika með nokkrum landsþekktum leikurum eins og bæðrunum Kjartani Guðjóns og Árna Pétri, svo má nefna þá Hjálmar Hjálmarsson og Arnar Jónsson, Gussa sem allir þekkja úr Fóstbræðrum.
Rosalega gaman að sjá þessa kalla í action hvað þá að leika með þeim.

Svo er ég að leika í "Spiderman" mynd sem bekkjarfélagi minn er að gera á laugardaginn næsta, það verður spennandi þó svo að ég hafi ekki fengið að leika Lóa sjálfan : )

Líf og fjör : )

25.3.09

Happy happy joy joy !

Nú ríkir aftur hamingja á heimilinu eftir erfiða klukkutíma við andlát sjónvarpsins okkar.
Nýtt tæki hangir nú á stofuvegg og yljar okkur með kristaltærri mynd og víðóma hljóm : )

42" LG plasma var fyrir valinu og er allmenn ánægja ríkjandi á heimilinu með gripinn.

24.3.09

Dánarfregnir og jarðarfarir

Ástkæra sjónvarpið mitt er látið 11 ára að aldri.





Þeir sem vilja minnast þess er bent á að leggja dágóða summu inná reikning hins sorgbitna eiganda sem er fátækur námsmaður með dýran smekk : /

Jarðarförin hefur þegar farið fram.

18.3.09

Góður draumur maður

Nóttina fyrir útileikinn gegn RM dreymdi mig langan og skrítinn draum, ætla ekki að fara mikið útí innihald draumsins en get sagt ykkur að hann endaði á því að ég hoppaði og fagnaði því að Liverpool væru bestir, enda hafði ég einhverstaðar í draumnum séð knattspyrnuvöll þar sem okkar ástkæra var að spila við andstæðing sem ég bar ekki kennsl á. En mikið fagnaði ég í draumnum, hló og skrýkti eins og skólastelpa og endaði svo á að faðma Gulla Helga : / en hann er harður púllari : )
Þegar öllu þessu var svo lokið og ég loks vaknaði var ég viss um að við myndum vinna Meistaradeildina enda fannst mér og finnst reyndar ennþá að EPL sé okkur runnið úr greypum.

Aníhú, my point is………við vinnum stóra dollu í ár : ) Þess má svo til gamans geta að ég hef alltaf verið berdreyminn……..þá á ég ekki við að ég sé alltaf ber þegar mig dreymir…….sem ég er reyndar líka : )

En það er önnur saga : )

Snillingar : )

Hressir gaurar : )

13.3.09

Enski. Leikir helgarinnar 29 umferð

Harry Potter?

Á föstudaginn fyrir viku síðan var hringt í sviðsstjórann okkar í Kvikmyndaskólanum hann Hálfdán, símtalið kom frá Loftkastalanum þar sem Menntaskólinn Við Sund hefur verið með nemendasýningu sína á söngleik um Harry Potter.
Á laugardagskvöld vorum við mættir kl 20, en sýning átti að byrja kl 21 en henni seinkaði til 21:30.
Þar sem við tókum eina cameru með okkur og einn microfón þá notuðum við tækifærið og tókum upp slatta baksviðs, viðtöl og fl.
Á meðan að á sýningu stóð vorum við aðallega að undirbúa okkur fyrir upptökur á sunnudagskveldinu, skoða hvar væri best að setja camerur og þessháttar.
Sýningu lauk rétt fyrir kl 01 og var maður að skríða í bólið um kl 02.

Á sunnudagskvöld var ákveðið að mæta kl 19 til að hafa nægan tíma í uppsetningu á camerum og mírofónum.
Það gekk allt saman vel og vorum við tilbúnir áður en sýning hófst : )
Reyndar klikkaði svo hljóðkerfið aðeins í Loftkastalanum í tveimur lögum þannig að þegar að sýningu var lokið og allir áhorfendur voru farnir úr salnum var ákveðið að endurflytja þessi tvö lög til að við næðum öllu efninu í bestu mögulegu gæðum.
Þessu ævintýri lauk því þegar vel var liðið á aðfararnótt mánudags og ég var kominn heim rétt fyrir kl 02.

Mætti svo þreyttur og illa sofinn í skólann á mánudagsmorgun reynslunni ríkari.
Svo er eftir að klippa þetta allt saman en það á eflaust eftir að reynast mikil vinna þar sem við tókum upp á 4 camerur og sýningin var yfir tveggja tíma löng, og svo aukaefnið sem tekið var upp á laugardagssýningunni, í allt er þetta líklega um 10 klt af efni.

Líf og fjör : )

7.3.09

Skólafréttir

Svona til að þið séuð "up to date" og einnig til að forða þessu bloggi mínu frá því að verða fótboltablogg þá koma hér smá fréttir frá náminu.
Síðustu 2 vikur hef ég verið í kúrs í "lýsingu á setti".
Hálfdán Theodórsson er sviðsstjóri okkar sem erum á tæknisviði skólans og sér hann einnig um þennan kúrs.
Við settum upp fjögur mismunandi sett sem öll voru lýst á mismunandi hátt og notuðum við tækifærið og settum upp litla leikþætti fyrir hvert sett.
Svo var það sem við tókum upp klippt til og notað sem fræðsluefni um hvernig lýsingu þarf til að ná þeirri stemmningu sem við vorum með.
Rosalega gaman allt og fræðandi.
Fyrsta hét Sólarkaffi og gerist á kaffihúsi, lýsingin átti að lýkjast mjög sólríkum og björtum degi.
Önnur myndin var nokkurnskonar "Film Noir"
Sú þriðja var "Guðfaðirinn" og var sett upp sena þar sem tveir "bófar" koma á fund "guðföðurinns" þar fékk ég að leika annann bófann : )
Og sú fjórða var "Breiðholt" og átti að gerast í venjulegri stofu, viðfangsefnið var tveir menn að þrátta um ágæti hljómsveitarinnar Abba.
Eftir klippingu og hljóðvinnslu var efnið tilbúið til sýningar í bíósal skólanns og hófst sýning kl 13 í gær föstudag fyrir fullum sal, viðtökur voru góðar og við vorum öll sátt við útkomuna.

Í næstu viku byrjum við svo á klippi kúrs þar sem við fáum að kafa dýpra í Final Cut Pro forritið.

Hlakka til : )

Svo má bæta við að okkur var boðið að vera viðstödd við tökur á nýrri mynd Friðriks Þórs á fimmtudag síðasta.
Hann var að taka í stóru einbýlishúsi í Kópavogi, eini leikarinn sem sem var í því atriði var Hilmir Snær.
Það var auðvitað mjög spennandi að sjá þetta fólk á sínum heimavelli, mjög afslappað andrúmsloft einkenndi allt þarna, en mér skilst að þannig sé það alltaf hjá Friðriki Þór.