31.1.09

Dexter og Earl

Maður getur ekki horft á allt sem sýnt er í sjónvarpi, eða hvað?
Þá er ég að meina allt sem almennt er talið gott efni.
Kannski ekki akkúrat þegar það er sýnt í sjónvarpinu, það þarf jú að koma börnum í rúmið og sinna því heimilislega sem hægt er á þessum stutta tíma milli næturtíma barna og fullorðinna.
Þess vegna er svo fjandi gott að sækja sér efni sem fengið hefur góða dóma og horfa á þegar manni hentar, "ólöglegt" segja sumir, bráðsniðugt segi ég.

Dæmi:
My Name Is Earl.
Gaman þættir sem ég held að hafi ekki verið sýndir í íslensku sjónvarpi (kannski Stöð 2)
Þræl skemmtilegir þættir um aula sem hefur farið illa með marga en fær skyndilega samvisku þegar hann verður fyrir slysi og trúir því að "karmað" sé að refsa honum.
Hann ákveður því að skrifa niður á lista allt það slæma sem hann hefur gert fólki og einsetur sér að bæta fólki upp þann skaða sem hann olli.


Og svo eru það þættirnir sem ég er alveg húkkt á þessa dagana:
Dexter.
Skjár Einn er með þessa þætti en þar sem þeir fóru alveg framhjá mér þá ákvað ég að sækja þá til að sjá sjálfur af hverju þeir eru svona vinsælir.
Og nú á rúmri viku er ég búinn að horfa á fyrstu seríuna og er hálfnaður með seríu 2.
Þræl góðir þættir sem óhætt er að mæla með.

30.1.09

Mínútumyndin frumsýnd í dag : )

Í dag var fyrsta sóló verkefnið mitt sýnt fyrir fullum sal í Kvikmyndaskólanum auðvitað ásamt öllum hinum mínútuverkefnunum.
Mörg skemmtileg myndbönd litu dagsins ljós (í myrkri samt enda erfitt að sýna bíó í dagsljósi) en ég var sá eini sem var með matreiðslumynd.
Myndirnar voru auðvitað misjafnar eins og þær voru margar og misvel unnar, ég tók eftir að í sumum var hljóðið ekki gott og stundum svo slæmt að maður heyrði ekki hvað aðalleikararnir voru að segja, það er aldrei gott.
Lýsing var svo auðvitað mis góð eins og gengur sem og myndataka, en í flestum myndum var þetta samt í fínasta lagi.
Hvað mína mynd varðar þá var ég ánægður með útkomuna, myndatakan fín og lýsingin, og í þeim tökum þar sem hljóðið var ekki nógu gott náði ég að laga það í klippi og hljóðvinnslunni þannig að þetta var að mínu mati lýtalaust myndband en það er auðvitað smekksatriði.

Sem sagt vel heppnuð frumraun sem fékk góð viðbrögð og er ég auðvitað ánægður með það.
Set þetta hérna inn þegar ég get til að þið getið séð sjálf.

Enski. Leikir helgarinnar 24 umferð

22.1.09

Meiri skóli

Jæja, ljúft er að segja frá því að upptakan af mínútumyndinni minni gekk vel og var afraksturinn snæddur í hádegismat af mér og "aðstoðarcrewinu" við góðan orðstýr.
Í dag vorum við svo að taka aðra mínútumynd og var tökustaður í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg, það gekk líka vel, reyndar svo vel að við náðum að byrja á 3 myndinni sem er tekin í húsakynnum Karatefélags Reykjavíkur, á að vera auglýsing fyrir félagið.
Á morgun kl 14 tökum við svo síðustu myndina, tökustaður er strípibúllan Strawberrys.
Þar mun ég líka fá að leika aðeins, á að vera dyravörður/útkastari : )
Verð í jakkafötum og alles.....ef ég kemst í gömlu jakkafötin mín : /

Gaman gaman gaman.

20.1.09

Skólafréttir

Það er auðvitað líf og fjör að vera í skóla, það var svo sem vitað mál en engu að síður gaman að fá að upplifa þessa stemningu á gamalsaldri.
Á gamalsaldri segi ég 37 ára maðurinn, en ég er auðvitað að vísa í meðalaldurinn í Kvikmyndaskólanum en hann ku vera 23 eða 24 ár, ég er ekki viss.

Anyhú, á föstudaginn síðasta var ég í hópi nema sem fengum það verkefni að gera stuttmynd eftir eigin hugmynd.
Við vorum send af stað með cameru, hljóðnema og bómu fyrir hann og þrífót, og var afraksturinn svo skoðaður óklipptur seinni part dagsins, skrítið stuff og amatöralegt : )
Gaman að segja frá því að einn "unglingurinn" sem var með mér í hóp sagði mér að honum fyndist ég vera "drullu svalur" að skella mér bara í skóla á þessum aldri.......ríspekkt : )

Í allan dag var ég í tíma hjá hressum náunga sem er snilli í klippingu myndefnis og fór dagurinn í að læra á Final Cut Pro, það var hrikalega gaman og ég get ekki beðið eftir næsta tíma í klippingu.

Á morgun (21/1) er hins vegar komið að mínu prívat verkefni, mínútumynd sem má vera um hvað sem er og fæ ég mér til aðstoðar 3 aðra nemendur til að taka mynd og hljóð, eftir vinnslan er svo eitthvað sem ég mun sjá um sjálfur þ.e. klipping og hljóðvinnsla.
Myndin verður svo skoðuð fullkláruð á mánudaginn af kennurum og nemendum.

Og hvað ætla ég svo að gera í þessu verkefni, jú ég ætla að taka upp 1 mín "matreiðsluþátt" hér í eldhúsinu heima hjá mér í fyrramálið og reikna svo með að geta boðið "aðstoðarfólkinu" í hádegismat þar sem afraksturinn verður snæddur.

Allt að gerast.

Bíó: Rec (2007)



Ung sjónvarpskona eyðir nótt ásamt tökumanni sínum á slökkvistöð til að taka upp "týbíska" næturvakt hjá slökkviliðsmönnunum og fer með þeim í útkall sem reynist vera öðruvísi en áætlað var.
Myndin vindur uppá sig og verður hryllilegri eftir því sem á líður.

Alveg hörkugóður "hryllingur" sem Spánverjarnir hafa framreitt fyrir okkur.
Pottþétt að það verður gerð Amerísk útgafa af þessari mynd.

Einkunn 8/10

18.1.09

Bíó: Taken (2008)



Liam Neeson leikur fyrrverandi sérsveitar eitthvað sem þarf skyndilega að fara til Frakklands að bjarga unglingsdóttur sinni úr höndum glæpahrings sem selur ungar stúlkur í vændi.
Ekker nýtt við þennan söguþráð en það sem gerir þessa mynd góða er hversu einbeittur faðirinn (Neeson) er við að finna dótturina.
Allir vondir kallar sem tefja hann eru bara fyrir honum og er þeim umsvifalaust rutt úr vegi.

Þræl fínn hasar.
Einkunn 8/10

17.1.09

Hummm........

Andy Kaufman og Jim Carrey eiga báðir afmæli í dag, á ég að trúa að það sé tilviljun?
Kaufman er auðvitað löngu dauður en samt.........

12.1.09

Skólasetning í dag.

Kvikmyndaskóli Íslands var settur í dag.
Eftir stutta ræðu frá skólameistara fórum við sem erum á 1 og 2 önn tæknisviðs á stuttann fund með yfirstrump sviðsins.
Skóla tími er frá 9-16 og er 1 klt í hádegishlé, þessi tími hentar mér mjög vel.

Mér líst gríðarvel á þetta allt saman og hlakka til að mæta í fyrsta tíma á morgun.

10.1.09

Síðbúinn jóla djókur.

Af hverju er jólasveinninn í svona góðu skapi?
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
.
Af því hann veit hvar allar óþekku stelpurnar eiga heima : )

6.1.09

Fyrri hálfleik lokið

Jæja, nú er tímabilið í enska boltanum hálfnað (og einum leik betur reyndar) og því er einnig þannig háttað í getspeki keppni okkar M3.
Ég hafði betur í fyrri hálfleik og vann því kippu af Stella bjór sem ég hef fengið afhenta : )
Við það tilefni voru teknar nokkrar myndir sem eru hér:





Stella bíður nú örlaga sinna í efstu hillu í kælinum hjá mér, hún verður afgreidd síðar : )

Þann 10 janúar á nýju ári hefst svo seinni hálfleikur hjá okkur M3 og ætla ég að núlla keppnina, og stöndum við þannig jafnfætis í splunkunýrri keppni um aðra kippu af Stellu : )

Gaman gaman, vil ég auðvitað þakka M3 fyrir drengilega keppni og fyrir að gera hverja umferð í boltanum enn meira spennandi.

2.1.09

Hversu heimskir.........

.......halda 365 miðlar að Íslendingar séu?
Núna reyna greyin að sannfæra fólk um að þar sem hætt var að rukka afnotagjöld fyrir Rúv nú um áramótin þá sé tilvalið að eyða þeim pening í afnotagjöld af Stöð 2 og því rusli sem þar er í boði!
Halda þessir asnar virkilega að fólk haldi að þar sem það borgar fyrir Rúv hér eftir í formi venjulegra skatta þá eigi það allt í einu auka pening sem sniðugt er að henda í 365?
Fáránlegt fyrirtæki sem alltaf virkar hálf kjánalegt á mig, frétta annállinn hjá þeim var fram reiddur þannig að fréttafólkið kom fram í "camoulflage" með byssur og kynnti allar fréttir ársins klætt sem "terroristar"!
Fréttastofa Stöðvar 2 er djók.

Nenni ekki að pirra mig frekar á þessu rugli.
Djöfull væri svo týbíst að ég ætti svo eftir að vinna fyrir 365 : )