Ég ætla að deila því með ykkur að ég fer ásamt konunni í helgar ferð til Akureyrar um næstu helgi.
Þar fáum við leigða íbúð yfir helgina og ætlum að njóta höfuðborgar norðurlands í þaula, fjörið byrjar strax á föstudagskvöld þegar við förum á tónleika með Frostrósum og meðreiðarsveinum þeirra, tenórunum Garðari Thor Cortes og Jóhanni Friðgeiri.
Það ætti að verða fínasta skemmtun.
Svo er bara að vona að veðrið verði boðlegt svo að laugardagurinn og sunnudagurinn geti orðið eftirminnilegir.
Hlakka til.
3 ummæli:
Huggulegt. :)
Á etv. að púlla clúsó og finna göngugrindina úr póstinum hér fyrir neðan. :)
Ja hver veit, löggan stendur í það minnsta ráðþrota í þessu svakalegasta sakamáli norðanmanna síðan að "einhver dóni" drakk úr bollanum hans Gests Einars í búningsherberginu í leikhúsinu þar nirðra 1992, þegar Gestur var á sviðinu að performa "Höskuld" í leikritinu Helvítis Mýsnar Ljúga.
Furðulegasta mál alveg og algerlega óupplýst enn í dag.
ÞAÐ var ég; ÞAÐ var ég, og ég pissaði í bollann hans Gestss og hann drakk síðan úr honum, vildi bara ekki segja frá því ;-)
mhho mhoo mhhooooo.....
Kveðja, Kveðja,
R.Giggs
Skrifa ummæli