4.12.08

Veruleika fyrrtur Davíð

Í viðtali við danskt dagblað segir Davíð Oddson að ef hann verði þvingaður frá störfum sem seðlabankastjóri þá muni hann snúa aftur í pólitíkina!
Skemmtileg hótun það.
„Þá hyggst ég hætta af sjálfsdáðum með sama hætti og ég gerði þegar ég lét af starfi forsætisráðherra. Verði ég hins vegar þvingaður úr starfi horfir málið allt öðruvísi við. Þá mun ég snúa aftur í stjórnmálin,“

Heldur maðurinn virkilega að hann eigi framtíð fyrir sér í stjórnmálum eftir allt sem hefur gerst?
Nú er þó nokkuð langt síðan að ég fékk þá tilfinningu að hann veikur í höfðinu, það er bara ekki eðlilegt hvernig þessi áður virti stjórnmálamaður sem var búinn að skrá sig í sögubækurnar sem einn mesti stjórnmálamaður Íslands hefur skitið upp á bak, hann var á seinni árum sem formaður Sjálfsstæðisflokksins farinn að sýna öll einkenni einráðs sem verður að hafa vit fyrir sauðheimskum almúganum.
Nú er það sama að gerast hjá honum í Seðlabankanum, sama hvaða ákvörðun kallinn tekur, ekkert virkar og þessi gamli sjálfskipaði kóngur Íslands þolir ekki að heimskur almenningur skilji ekki hvað hann er klár og góður við okkur.

Ég vona eiginlega að hann verði settur af sem seðlabankastjóri og enn meira vona ég að hann reyni fyrir sér aftur sem stjórnmálamaður, það væri gaman.

Engin ummæli: