24.11.08

Skilgreindu "nýtt"

Ég fór í Nóatún hér í Grafarholtinu til að versla lítilræði, og þar sem ég arka framhjá "nýbakað brauð" horninu finn ég til löngunar í eins og eina kleinu með kaffinu þegar ég kem heim, þannig að ég tek eina og finn strax mér til undrunar að hún er ísköld og rök.
Fyrir innan hillurnar var starfsmaður Nóatúns að "baka" og spurði ég hann hvort þessar kleinur væru síðan í gær, nei nei þær eru nýjar sagði hún...............nú sagði ég, en þær eru ískaldar............já sko þær koma frystar og við bara afþýðum þær sagði hún þá.
Já sagði ég þá, og flokkast þær þá sem nýbakaðar spurði ég, já sagði hún þær eru sko frystar strax eftir bökun.
Jæja ég held að ég sleppi þessu bara sagði ég þungbrýnn af vonbrigðum.

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

HnarHnarhnar, Sæmundur í vinnufötunum með kaffinu er algört möst hér á verkstæðinu. Veit ekki hvernig við færum að ef þær gæða kökur seldust upp........... kannski frosnar kleinur ?? Nei, ég held ekki.
En spáin fyrir kveldið ???? Já efrópuleikirnir, koma svo!

Kleinu kveðja,
Herra Giggs

M4 sagði...

Skorast ekki undan áskorun, hér eru úrslit kveldsins : )

2 Zenit St Petersburg - Juventus
2 AaB Álaborg - Celtic
1 Arsenal - Dynamo Kiev
2 BATE Borisov - Real Madrid
1 Bayern Munchen - Steaua Búkarest
X Fenerbahce - FC Porto
1 Fiorentina - Lyon
X Villarreal - Manchester United

M3 sagði...

má ég vera memm???
2
x
1
x
1
1
2
x

M3 sagði...

ps: hvar er spáin frá Giggs???

M4 sagði...

Giggsarinn er flottur kall, en ekki mikill spámaður : )

Nafnlaus sagði...

Sorrý, var í flugi yfir sundi. Reikna með að vera á bekknum í kvöld, en við vinnum samt 2 - 0.

HEY... hver setti X við okkur ??? Dóni, nei þetta er líklega bara óskhyggja ... eða öfund, þarna Púllari þinn. Hver spáði Harrý Potter sigri ??? Nú, ég ?? já ok.

Kveðja, kveðjaaaa.
Spá Giggs