Ég fór í morgun í viðtal uppí Kvikmyndaskóla Íslands vegna umsóknar minnar í tækninámið hjá þeim.
Gaman að segja frá því.
Þar var ég spurður um allt mögulegt og er óhætt að segja að viðtalið hafi verið yfirgripsmikið.
Mér var sagt að venjulega væri auðveldara að komast inn á vorönn en haustönn (færri umsækjendur) en vegna ástandsins í þjóðfélaginu væru óvenju margir umsækjendur núna, en aðeins 12 teknir inn.
Mér fannst viðtalið ganga vel og var mér sagt að ég fengi að vita um niðurstöðu eftir c.a. 2 vikur.
Þetta er að verða spennandi : )
3 ummæli:
Krossa fingur og tær fyrir þig.
Takk fyrir það.
Ég hef góða tilfinningu með þetta : )
Spennandi!! :))
Krossa allt draslið fyrir þig!
Skrifa ummæli