
Það sem mér finnst óþægilegast í þessu öllu er að fyrir viku síðan fullyrti Lárus Welding í Silfri Egils að staða íslensku bankanna væri góð og ítrekaði það með því að segja að sér fyndist gott að sjá hve bankarnir væru í raun vel undirbúnir fyrir þessa erfiðu tíma sem nú eru á fjármálamörkuðum og þeir væru í raun að styrkjast með hverjum degi sem líður!
Er virkilega já?
Eiga svo ekki hinir vel reknu bankarnir eftir að sökkva í kjölfarið á Glitni?
Nei nei, örugglega ekki enda er ekkert vandamál á ferðinni samkvæmt Geira og Árna.
Fífl!
1 ummæli:
Höldum bara áfram að kjósa Sjálfstæðisflokkinn þá förum við pottþétt til HELVÍITIS.
Skrifa ummæli