Vil bara benda á að eldsneytisverð á heimsmarkaði hefur lækkað mjög mikið undanfarið og er nú á sama verði og það var í febrúar á þessu ári.
Í febrúar á þessu ári voru þessi verð á sjálfsafgreiðslu dælum Skeljungs:
bensín 137,9
dísil 142,4
í dag er verðið hins vegar:
bensín 165,7
dísil 179,6
Hvað er málið?
2 ummæli:
en hvert var gengið í febrúar??
Dollari - 15. feb 2008 - 67 kr
Dollari - 17. sept 2008 - 94 kr
Mismunur 27 kr eða 40% eða sami krónumunur, en ef ég uppreikna verðið miðað við bara gengið væri bensínið á: 193,06 kr
Ekki það að ég sé að verja þessi fífl, en langaði bara að benda á þetta ;-)
Jamm, rétt hjá þér, ég fór einmitt að pæla í þessu eftir á: )
Þetta eru samt fífl : )
Skrifa ummæli