31.7.08

Golfhringur # 9

Já ágúst mætir á morgun og ég er búinn að spila heila 9 hringi á sumrinu, ekki alveg eins og planað var því miður.
En í bítið í morgun fór ég ásamt M2 á Hlíðarvöll í Mosó í fyrsta skiptið, fínn völlur og veðrið eins og best verður á kosið, skorið betra en ég hefði þorað að vona enda ekki spilað í 5 vikur, 109 högg sem gáfu 31 punkt.
Mun gera betur næst : )

30.7.08

Heim úr útlegð

Jæja við vorum að skríða heim eftir 5 daga útilegu sem var í alla staði hin besta.
Við byrjuðum að að fara í Húsafell og vorum þar á föstudag og laugardag í fínasta veðri.
Sérstaklega verð ég að mæla með kvöldvökunni á laugardagskvöldum í Húsafelli, en þar skemmtu tveir hressir heimamenn með söng og íslenskri fyndni......aðallega gaman samt fyrir börnin og svo auðvitað þessa sem komu rúllandi í dældina og voru keyrðir heim í "tjald" í hjólbörum : )



Dagný Lóa í Húsafelli.






Á sunnudag keyrðum við svo norður í Hrafnagil, sem er c.a. 10 km fyrir austan Akureyri.
Þar er aðstaðan hin fínasta og ekki spillir fyrir sundlaug sem margfalt stærri byggðarlög myndu stæra sér af.


Trausti Leó að striplast í Hrafnagili.




Blíðan var allsráðandi á norðurlandinu þessa þrjá daga sem við vorum þar, 20+ alla dagana og 25 í dag þegar við fórum heim sólbrunnin og sæl eftir tjaldveruna.



Margrét og Trausti í kvöld hópgöngu.

25.7.08

Tónleikar með Damien Rice

Ég fór í gærkveld ásamt Móunum á tónleika Írans Damien Rice í Nasa, ég hef í nokkur ár hlustað á hans tónlist og líkað vel.
Á undan honum á svið var amerísk stúlka sem ég man ómögulega hvað heitir en hún var sæmileg, hafði reyndar fína rödd en tónlistin var svona eitthvað sem maður er búinn að heyra hjá mörgum stelpum á undan henni t.d. Amy McDonald.
Svo kom Írinn á svið og hann var ekki lengi að negla áhorfendur með húmör og svo auðvitað með þunglyndislegri mússíkinni sinni, sem hann gerði óspart grín að í gegnum tónleikana, gaman að sjá tónlistar mann sem líður svona svakalega vel á sviðinu að það var eins og hann væri að spila fyrir stóran vinahóp sinn, auðvitað hefur hann fulla ástæðu til að vera með sjálfstraustið á fullu enda eru þetta þriðju tónleikar hans í Nasa og alltaf uppselt.
Snilldin ein sem sagt og til að gera flott kvöld frábært var boðið til grillveislu hjá M101 fyrir og eftir tónleikana og þakka ég kærlega fyrir mig.

En hér er smá bútur úr laginu Blowers Doughter sem ég tók upp.


22.7.08

Bíó: Mamma Mia (2008)



Ég bauð konunni í lúxus salinn í Smárabíó til að sjá þessa mynd sem er kvikmynda aðlögun á samnefndum söngleik sem hefur slegið öll með nánast allsstaðar þar sem hann er sýndur, eins og myndin gerir líka.
Ég ætla ekki að tala um hvað myndin fjallar en rauði þráður hennar er þó auðvitað tónlist hljómsveitarinnar ABBA, og fyrir aðdáanda þeirra sem ég er þá er þessi mynd alveg pottþétt skemmtun.
Það sem kom mér mest á óvart er að leikarar eins og Stellan Skarsgård, Pierce Brosnan og Meryl Streep sem eru ekki merkilegir söngvarar ná að skila frá sér fínni frammistöðu með því að bæta fyrir sönginn með skemmtilegri framkomu og leik, það á sérstaklega um Meryl Streep sem er auðvitað ein allra besta leikkona síðustu áratuga en hún kemur lögunum frá sér með því að krydda þau með leikrænum tilburðum þannig að maður tekur ekki eftir þvi að hún er í raun frekar döpur söngkona og gerir þannig lögin að sínum.

Stórskemmtileg mynd og mig langaði mest að syngja með í bíóinu en lét fæturna í staðinn dingla með í takt.

Einkunn: 8/10

20.7.08

Stutt útilega að baki.

Ég kom heim um miðjan dag eftir að hafa farið með fjölskylduna í einnar nætur útilegu í Þjórsárver.
Æðislegt veður var í gær, brakandi sól og blíða og allt eins og best verður á kosið.
Það var margt um manninn í Þjórsárveri, nánast fullt og fyndið að fyrir utan eitt túristapar þá vorum við þau einu í tjaldi, allir með hýsin sín og þessir allra flottustu voru með gríðarstór hjólhýsi á tveimur öxlum aftan í jeppanum og stoltir eigendurnir stóðu svo með fjarstýringu og stýrðu hýsinu sínu á réttan blett eftir að hafa tekið aftan úr jeppanum, magnað helvíti að sjá enda ekki hægt að ætlast til að menn bakki jeppanum.....nei nei bara taka aftanúr og rífa svo upp fjarstýringuna..snilld : )
Við sluppum að mestu við umferðina sem myndaðist seinni partinn sem betur fer, en ég verð að játa að ég verð alltaf jafn andskoti pirraður þegar maður er þvingaður til að keyra þjóðveginn í gegnum Selfoss, umferðin gengur yfirleitt vel en svo allt stopp vegna þess að þjóðvegurinn liggur í gegnum þetta skítapláss sem einhverja hluta vegna er alltaf með holótta og ónýta vegi, vona að þetta breytist þegar vegurinn verður tvöfaldaður og það verði sett upp ný brú austan við sorapleisið.
Annar fáránlegur flöskuháls á svona dögum úti á þjóðveginum er helvítis hringtorgið við Hveragerði, hvers vegna var það sett upp?
Kannski útaf því að á sama tíma opnaði Bónus í Hveragerði....alveg við veginn?
Helvítis samsæri og ekkert annað!
Svona svona, voðalegur pirringur er þetta : )
Talandi um pirring, svona er veðurspáin næstu viku, bara gaman : )

14.7.08

Sumarfrí!

Bara svona til að allir viti, þá er ég kominn í sumarfrí næstu 4 vikurnar : )
Allir verða líka að vita að hláturinn lengir lífið og þess vegna er það þess virði að leggja á sig að eyða 4 mín í að horfa á þetta videó.


Try Not To Laugh - Watch more free videos

13.7.08

Trausti "talar" í svefni



Ég tók þetta stutta videó í dag þar sem stubburinn var að leggja sig í pabba rúmi og áhvað að setja það hérna inn.
Mömma hans og systir sem eru staddar í Danmörku fá örugglega notalega tilfinningu að sjá krúttið : )

11.7.08

Föstudagsfílingurinn!

Partý Bær (Hafnir City) Með Ham.
Enjoy!

Alvöru amerísk ljóska

Þetta myndband er alger snilld!
Skjár 1 er að sýna þessa þætti og eru þeir mun betri en íslenska útgáfan sem var í fyrra.


"I thought Europe was a country"
The right answer is Hungary.
"What! Hungary?
Yea....like i'm hungry
"Hungary.....that's a country? I've heard of Turkye but....."

Klassík : )

10.7.08

2 dagar í frí : )

Sem er auðvitað hið besta mál, tilhlökkunin er orðin mikil enda hafa undanfarnar vikur verið erfiðar vegna mikillar vinnu og ekki hefur hjálpað að horfa uppá þá sól og blíðu sem hefur ríkt án þess að ég fái notið þess á nokkurn hátt, tja nema um helgar auðvitað.
En talandi um veðrið, þá var ég að kíkja á heimasíðu veðurstofunar og eins og við mátti búast á að byrja að þykkna upp á laugardag og tekur rigningin svo við og verður fyrsta vikan í sumarfríi þess vegna að öllum líkum blaut : )

En hvað vita þessi veðurfræðingar svo sem?

Klassi?

Það er lítil reisn yfir starfslokum Guðmundar Þóroddssonar, fyrrverandi forstjóra Orkuveitunnar.
Auðvitað er þetta Orkuveitu/Rei mál allt hið mesta klúður en ekki þarf nokkur að efast um að Guðmundur fær spikfeitan starfslokasamning ofan á margmiljóna mánaðarlaunin sem hann hefur verið með hjá fyrirtækinu, en að neita að skila einhverri jeppadruslu í lok starfs og gsm símanum líka er einstaklega hallærislegt.
Auðvitað þurfti hann jeppann til að geta flutt öll gögnin sem hann tók með sér en hann gat nú alveg skilað honum að því loknu : )
Gangi honum vel að fá vinnu í framtíðinni.

9.7.08

Bíó: 10,000 BC (2008)



Frá manninum sem píndi okkur með rusli eins og The Day After Tomorrow (2004) og Independence Day (1996) kemur þessi mynd sem gerist eins og nafnið gefur til kynna 10.000 árum fyrir krist, frummaðurinn er farinn að þróast nokkuð en allskonar frumdýr ráfa ennþá um jörðina, eins og t.d. loðfíllinn og sverðtígri.
Hér er á ferðinni ástarsaga og baráttan um að halda lífi er aðal hér.
Frekar horfa á Apocalypto bara aftur : )

Skítsæmileg mynd sem reynir og reynir en nær því bara ekki.

Einkunn: 5/10

8.7.08

Hr. Íran og frú

Þar sem lífið er bara vinna þessa dagana hef ég haft lítinn tíma til bloggs en skelli samt þessari fallegu mynd af forsetahjónum Írans í eina færslu.



Hjónasvipur?

7.7.08

Síðasta vinnu vika fyrir frí!

Aðeins 5 dagar eftir af vinnuskyldu fyrir fjögurra vikna frí : )
Já já ég veit að ég er nýkominn úr feðraorlofi en fjandinn hafi það ég hef mætt í vinnu í 5 vikur fyrir þetta frí og bara staðið mig helvíti vel þó ég segi sjálfur frá......allavega eru allir að tala um það sko.......á alveg skilið að sóla mig eins og aðrir!
Spila golf, fara í útilegu og bara njóta lífsins.

4.7.08

Föstudagsfílingurinn!

Fílingurinn að þessu sinni er fluttur af Brooklin bandinu MGMT.
Lagið könnumst við sem höfum verið að fylgjast með EM í sjónvarpinu en Þorsteinn Joð hefur óspart notað þetta lag undir samantektar videóum.
Þess má geta að upptökustjóri sveitarinnar er Dave Fridmann en hann hefur einmitt séð um upptökur á flestu plötum The Flaming Lips við góðan orðstýr.

Loksins loksins verð ég ríkur!

Gengi hlutabréfa í DeCode, móðurfélagi Íslenskrar erfðagreiningar, hefur hækkað um tæp ellefu prósent á bandarískum hlutabréfamarkaði í dag og stendur það í 1,22 dal á hlut.

Sko, nú bendir allt til þess að fjárfestingin sé að skila sér í massífum gróða........bráðum : )

3.7.08

Öruggur sigur Armena í Eurovision 2009!


Ef eitthvað er að marka sögur þær sem segja frá því að hljómsveitin síkáta System Of A Down vilji keppa fyrir hönd landsins : )
Meðlimir sveitarinnar eru jú Armenar og ættu mitt atkvæði öruggt.

2.7.08

Ekkert bakkupp!

Fíni fíni Lacie 500Gb flakkarinn sem ég keypti í BT fyrir rúmu ári síðan og hef notað til að bakka uppgögnin mín er dáinn.
Búinn að aftengja kvikindið og fer með hann í viðgerð í dag, eins gott að töllan hrynji ekki á meðan en hún hefur verið að haga sér skringilega undanfarna daga : /

Euro 2008. Spámaðurinn mikli?

Eins og glöggir lesendur hafa tekið eftir þá setti ég hér inn spá fyrir alla leiki í EM, en hvernig gekk?
Er ég spámaðurinn mikli frá Þykkvabæ?

Leiknir voru 31 leikur og var ég með 15 rétta af þeim auk þess að hitta þrisvar á rétta marka tölu, engan veginn ásættanlegt að vera með aðeins 48% rétt og það er nokkuð ljóst að ég verð að bæta mig á næsta HM eftir tvö ár, fylgist með, ekki fara langt : )

1.7.08

It's all downhill from here.

Það sagði í það minnsta gáfaður vinur minn þegar ég varð þrítugur, og svei mér þá ef hann hafði ekki rétt fyrir sér.
Ég er bara alltaf veikur, kenni að vísu börnunum um það í flestum tilvikum enda er maður marineraður í hori og slefi alla daga.
Á föstudaginn síðasta tók ég eftir því að það var farinn að myndast gröftur í vinstra auganu á mér, ég hélt að þetta væri bara einhver óhreinindi og pældi svo ekki meira í því, en þetta ágerðist og á laugardagsmorgun var vinstra augað orðið bólgið og blóðhlaupið og tárinn runni í stríðum straumum úr því.
Ég fór á læknavaktina og hitti þar fyrir tengdapabba M2 og hann sagði mér að ég væri kominn með vírussýkingu í augað og ég ætti bara að nota sama kremið í augun á mér og sonur minn er að fá í sín........gleymdi ég að minnast á að Trausti er búinn að vera veikur síðan á fimmtudag? Hann er orðinn ágætlega sprækur núna en aðra sögu er að segja um augun á mér, þetta helvíti er núna í báðum augunum og ég fór heim úr vinnu í gærmorgun og vann ekkert í dag, sé til að morgun.

Helvítis djöfull!