Sama blíðan, annar dagur.
Í dag var frekar rólegt yfir genginu, ég keyrði Margréti til læknis, en hún hefur verið fárveik undanfarna 3. daga.
Niðurstaða, streptakokkar (held það sé skrifað svona) og pennsilín kúr.
Eftir hédegi fórum við til Disney World og eyddum deginum í Magic Kingdom sem verður að segjast er alger snilld, mæli með þessu fyrir börn og fullorðna.
Fékk þær fréttir þegar ég hringdi í Golfverslun Edwin Watts í dag að kylfurnar mínar ættu að koma á föstudaginn og ef það stenst þá ætti ég að ná að testa þær svolítið áður en þær fara í frostið í Básum.
Ætli maður leigi bara ekki aftur sett á morgun ?
Já og beri á sig sólarvörn líka : )
Kveðja í skaflinn : )
29.1.08
28.1.08
Florida calling !
Það leit sannarlega ekki út fyrir að mér væri ætlað ferðalag til Florida á föstudag.
Þegar ég vaknaði um morguninn var skollið á skíta veður og í fréttum útvarpsins var sagt frá því að vegurinn til Keflavíkur væri lokaður vegna ófærðar og lélegs skyggnis.
Alveg er þetta týbíst hugsaði ég, ég hlít að vera seinheppnasti ferðalangur í sögu Þykkbæinga !
Fór að hugsa mér til hreyfings um kl 14 og gekk ferðin vel til flughafnarinnar, þrátt fyrir að bílum hafi verið hleypt í hollum til Keflavíkur.
Eftir að hafa böðlast yfir snjóskafla og dottið þrisvar sinnum á hausinn haldandi á tveimur töskum og golfpoka komst ég lafmóður og hóstandi úr mér lungun inn í flugstöð þar sem ég tékkaði mig inn.
Vélin átti að fara í loftið kl 17:25 en tók flugið á endanum kl 21: 30 : )
Ókyrrð var þó nokkur fyrsta klukkutímann en ekkert sem fokkar í nagla eins og mér.
Loks var lent hér í Orlando kl 05:20 að ísl. tíma 12:20 að staðartíma.
Í gær fór ég í heljarinnar verslunarleiðangur og keypti allt sem tæknióðan mann langar í, IPhone og Full HD videotökuvél t.d.
Ég fór í Edwin Watts golfverslun með heljarinnar lista yfir kylfur til að prufa sem golf kennarinn minn hafði útbúið fyrir mig, nú auðvitað verða líklega einhver vandræði með að fá kylfurnar sem ég féll gersamlega fyrir, a.m.k. nægjanlega snemma til að ég geti notað þær að einhverju viti áður en við förum heim, gæti farið svo að ég láti hreinlega senda þær með pósti !
En talandi um golf þá fórum við tengdapabbi í golf í dag á velli sem heitir Highlands Reserve Golf Club og er í c.a 5 mín akstri héðan þar sem við búum.
Fínasti völlur og ekki var veðrið að spilla fyrir, reyndar þegar við vorum á fyrsta teig þá var nánast alskýað en mjög fjótlega rofaði til og svo var bara alveg heiðskýrt og steik, og já ég sólbrann að sjálfsögðu : )
Og skorið ?
Eigum við ekki bara að segja að ég var sáttur : )

13. braut.

Allstaðar eru appelsínutré og undir þeim appelsínuhrúgur.
Tengdapabbi og Skorsku feðgarnir sem voru með okkur í holli, hressir gaurar og talsvert betri en við í golfi : )

25.1.08
Florida núna !
20.1.08
Hvað skal segja ?

Góðan dag.
Ég hef tekið mér smá frí frá bloggi í nokkra daga vegna fráfalls föður míns.
Hann lést á aðfararnótt þriðjudags þann 15. janúar.
Pabbi lést á sjúkrahúsinu á Selfossi eftir veikindi sem hafa verið að ágerast rólega í þónokkurn tíma. Á endanum var það hjartað sem gaf sig og lést hann í svefni.
Varla þarf að taka það fram að þó svo að maður hafi vitað að í þetta stefndi þá er maður aldrei undir það búinn að sjá pabba sinn aldrei aftur. Bara það setja niður þessi orð hér kemur fram tárum hjá mér og taldi ég þó að ég væri orðinn nægjanlega sterkur til að koma þessu frá mér.
Hér er örstutt endurminning. Ég vona að ég fari rétt með.
Páll Óskar Hafliðason fæddist í Búð í Þykkvabæ, Djúpárhreppi 29. nóvember 1921.
Sonur Hafliða Guðmundssonar og Guðrúnar Daníelsdóttur og einn af sex systkinum.
Pabbi útskrifaðist sem Bóndi frá Bændaskólanum á Hólum og starfaði sem slíkur mestan part ævinnar ef frá er talin sjómennska og allskyns verkavinna í landi til skemmri tíma.
Pabbi sagði mér að hann hafi alltaf viljað verða kennari en af því hafi ekki orðið. Mín skynjun á ástæðunni fyrir því er að hann var bundinn átthagafjötrum eins og mikið var um í sveitinni í gamladaga.
Pabbi rak býlið að Búð í samvinnu við pabba sinn meðan afi hafði heilsu til, en afi bjó þó alla tíð hjá okkur þrátt fyrir að vera löngu hættur afskiptum af búskapnum.
Afi lést árið 1980.
Árið 1969 kom svo mamma í sveitina til að starfa sem ráðskona á heimilinu, þá var hún ekkja með fjögur börn.
Ekki leið langur tími þangað til þau höfðu fellt hugi saman enda glæsileg bæði og eðal manneskjur : )
Pabbi og mamma gengu í hjónaband 28. nóvember 1970 og eignuðust svo mig 13. maí 1971, (you do the math : )
Pabbi var mikill húmoristi og dugnaðarforkur, hann var barngóður mjög sem kristallast kannski best í því hversu auðvelt hann átti að með að verða skyndilega fjögurra barna faðir, og ekki löngu síðar fimm barna.
Ætli ég hafi ekki kynnst pabba best í kartöflukofanum þar sem við eyddum óteljandi tímum saman við vinnu, og þrátt fyrir að ég sem unglingur og jafnvel sem ungur maður hafi ekki alltaf verið ánægður með hlutskipti mitt við að vera um helgar og jafnvel eftir skóla lokaður inni í kældri dimmri geymslu að flokka kartöflur þá eru það líklega bestu tímarnir sem ég átti með pabba.
Oftast bara við tveir að ræða allt milli himins og jarðar.
Ég hefði ekki trúað því þá ef einhver hefði sagt mér að þetta yrðu gullnu stundirnar.
Sanngjarnari og betri manni mun ég aldrei kynnast.
Bless pabbi minn og takk fyrir allt.
Þinn sonur,
Hafliði.
13.1.08
11.1.08
Tannbursta slys !
Jebb, varð fyrir því einkennilega óhappi að missa stjórn á tannburstanum mínum af Reach gerð við burstun á framtönnum fyrir tveimur dögum með þeim afleiðingum að ég rak burstann upp í góminn undir efri vör.
Eftir þetta óhapp hef ég óþolandi sár á gómnum sem er alveg ferlega pirrandi.
Vildi ég bara deila með þér.

9.1.08
Fimmta árið !
Ja hvur andskotinn, ég var að fatta að þetta er fimmta árið sem ég blogga !
Ég veit satt best að segja ekki hvort það sé sorglegt eða hvort það er fagnaðarefni.
Nú jæja þetta er í það minnsta oftast gaman, og svo er líka svo skemmtilegt þegar lifnar yfir commentum, wink wink ; )

Bíó: Death Proof Trailer (2007)
Fyrri myndin úr "double feature" pakkanum Grindhouse.
Pælingin með Grindhouse pakkanum hjá þeim Tarantino og Rodriquez var að gera samlokumyndir í anda 70's, með lélegum klippingum og nánast í B-mynda stíl.
Þrælskemmtileg mynd sem Tarantino aðdáendur missa ekki af.
Einkunn: 8/10
8.1.08
Hvar er ritstjórinn ?
Ég bara spyr, er ekki að koma að uppfærslu á þessari síðu ?
Eða verður það ekki fyrr en eftir áætlaðan töflufund í febrúar ?
Annars er gaman að lesa þessu gömlu pósta og engin spurning um að halda síðunni gangandi þó ekki nema bara fyrir þessa bévítans spammara sem eru að commenta : )

7.1.08
Bíó: 28 Weeks Later (2007)
Framhald hinnar geisigóði 28 Day's Later.
Ekki eins góð, en fín spenna samt.
Einkunn 7/10
4.1.08
Bíó: Pirates of the Caribbean 3
Þriðja myndin um ævintýri skipstjóranns Jack Sparrow.
Ágætis mynd, átti samt von á meiru.
Einkunn: 7/10
2.1.08
Áramótaheitið 2008
Ég veit varla hvað skal segja með áramótaheitið þetta árið annað en að endurtaka bara það síðasta : )
Þess má þó geta að smá árangur náðist í baráttunni en þar sem ég byrjaði eiginlega ekki fyrir alvöru fyrr en í júlí þá er ég bara nokkuð sáttur : )
En hér er áramótaheit síðasta árs og ársins 2008 copy/paste'að
Áramótaheitið 2007
Áramótaheitið mitt eru ekki ólíkt áramótaheitum allra síðustu ára, þ.e.a.s. allra áranna síðan ég var orðin nógu gamall til að átta mig á því að það þykir afskaplega flott að vera fitt: Ég ætla að hætta að éta eins og svín og stunda reglulega hreyfingu.
Þar sem þetta hefur verið áramótaheit, miðsumarsheit og bara venjulegt mánudagsheit oft og mörgum sinnum hlýtur slíkt heit að hafa farið í vaskinn í fjölmörg skipti hingað til. Þá er bara spurningin hvernig maður tæklar vandann í þetta skiptið. Fyrst af öllu ber að vara sig á gildrunum, en þær eru:
afmælisveislur - ca 5 til 8 sinnum á ári
páskar einu sinni á ári- ca 4 dagar
jól allur - desembermánuður
sumarfrí - einn mánuður á ári
föstudagar - 52 stykki
laugardagar - 52 stykki
árshátíðir - tvisvar á ári
þorrablót - tvisvar á ári
Það ber sem sagt að hafa varann á allt árið en sérstaklega þessa ca 178 daga sem mann langar sérstaklega mikið í nammi eða góðan mat.
Einnig þarf að passa sig á öllum þeim afsökunum sem til eru fyrir því að stunda ekki hreyfingu í dag:
Ég var að vinna svo lengi - 5 dagar í viku
Það er rigning úti - mjög oft
Það er hálka og/eða snjór - mun sjaldnar
Það er alltof gott veður - mjög sjaldan
Ég nenni ekki - frekar oft
Ég var að borða - nokkrum sinnum á dag
Svo ber að varast að gera samning við sjálfan sig:
Ég hreyfi mig bara á morgun og hinn í staðinn fyrir að hreyfa mig í dag.
Ég borða bara þeim mun minna á morgun.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja vikuna (oft á miðvikudegi). Ég byrja bara á mánudaginn.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja mánuðinn (oft fyrir fimmtánda). Ég byrja bara í næsta mánuði.
Ég er nú hvort eð er búin að eyðileggja árið (yfirleitt ekki fyrr en í nóvembar, er nokkuð bjartsýn týpa). Ég byrja bara á næsta ári.
Árið 2007 verður sem sagt árið sem ég hætti að vera sjálfur mér og öllum í kringum mig til háborinnar skammar !

1.1.08
Skaupið 07
Ég var bara vel ánægður með Skaupið, fullt af fínum atriðum og margir skemmtilegir leikarar.
Ég er mikill aðdáandi Jóns Gnarr og verð ég að segja að atriðið þegar hann riðst inná settið þar sem er verið að taka upp Stundina Okkar og leitar í æði að selnum Snorra fannst mér vera tær snilld : )
Ég hef séð Stundina Okkar nánast á hverju Sunnudegi og svo jafnvel í endursýningu líka og þessir veðurfræðslu sketsar með selnum og Þór veðurfræðingi eru óþolandi.
Ég veit samt um einn föður sem kann örugglega vel að Meta þessa fræðslu : 7

Allt búið ?
Jæja þá eru jólin og áramótin liðin og hversdagsamstrið tekur við hjá flestum.
En ekki mér : )
Ég byrja nefnilega ekki að vinna fyrr en næsta mánudag, eftir 5 daga : )
Vinn þá í tæpar 3. vikur og fer þá í frí til Florida : )
Sei sei já.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)