31.12.08

Áramótakveðja M4. 2008



Kæru vinir og fjölskylda.
Ég óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs með kæru þakklæti fyrir árið sem er að líða.

30.12.08

Stefán Grjótharður

Steven Gerrard er mál málanna í dag en ekki fyrir að vera frábær knattspyrnumaður.
Gerrard (Captain Fantastic) hefur verið ákærður fyrir að berja plötusnúð nokkurn á skemmtistaðnum "The Lounge" en téður skífuþeytir sem er yfirlýstur Man Utd aðdáandi spilaði víst full mikið af Abba lögum.
Eftir fjölmargar kvartanir Hr. Grótharðs og annara gesta ákvað Cap. Fantastic að berja smá vit í hausinn á plötutrúðnum og hefur að launum uppskorið þetta mál sem nú tröllríður íþróttamiðlum.

Í minni bók er Gerrard og verður helvítis nagli.

Veikir

Nú erum við feðganir heima veikir, hundfúlt.
En við ætlum að vera hressir á morgun, jeyyy.

Leiðrétting:
Þegar þetta er skrifað er klukkan að verða 10 á gamalárskveld, ég ligg í stofusófanum með 39+ Trausti er enn með hita og Dagný lagðist áðan með hita og eyrna verk :(
Glatað ástand.

23.12.08

Ilty Ebni

Nú er áfengið orðið svo dýrt að nú ég hef ekki lengur efni á að kaupa nýja skó : /

22.12.08

Smugan.is

Stal þessu þaðan:

Skál!

Af mbl.is

Jólabjór hefur hækkað um allt að helming frá því í desember í fyrra, samkvæmt könnun Neytendasamtakanna. Verðhækkun er minnst á hinum danska Royal Xmas jólabjór, um 23% og mesta hækkunin er á íslenska Víking jólabjórnum eða rúm 49%.

Í desember fyrir ári birtu Neytendasamtökin verð á jólabjór í 33 cl. umbúðum hjá ÁTVR. Á vefsíðu Neytendasamtakanna segir að fróðlegt sé að skoða verðbreytingar á þessu tólf mánaða tímabili, enda hafi nokkrar ákvarðanir verið teknar síðustu vikur sem hafi áhrif á verðið.

Bæði hækkanir á áfengisgjaldi, álagningu og verðhækkanir hjá birgjum ásamt skilagjaldi umbúða hafi haft áhrif á verðþróun.

Royal Xmas, dós (5,6%) kostaði 169 krónur fyrir ári en kostar nú 208 krónur. Hækkunin er 23%.

Tuborg, dós (5,6%) kostaði 194 krónur í fyrra en kostar nú 244, hækkunin er 26%.

Egils, í gleri (4,8%) kostaði 198 krónur í fyrra en kostar nú 260 krónur og hefur því hækkað um 31%.

Tuborg, í gleri (5,6%) kostaði 198 krónur en kostar í dag 276 krónur sem er 39% hækkun.

Egils Malt, í gleri (5,6%) kostar nú 281 krónu en kostaði 198 krónur fyrir ári. Hækkunin er 42%.

Víking, í gleri (5,2%) kostaði 174 krónur í desember í fyrra en kostar nú 260 krónur. hækkunin er 49%.

Neytendasamtökin taka fram að könnunin er alls ekki tæmandi og fleiri tegundir jólabjóra fást í verslunum ÁTVR.

20.12.08

Jólasaga

Svo bar við að húsgagnasmiðurinn Jósef frá Nazaret fór í 80 km. ferð með konu sína, kasólétta.

Þegar þau komu til Betlehem, fór Jósef af asnanum, og tók pjönkur og pinkla af herðum Maríu konu sinnar. Hann gekk inn á besta mótel bæjarins og gekk að afgreiðslunni. Matthías í afreiðslunni, sagði Shalom, hvað get ég gert fyrir þig bróðir". Jósef svaraði, „mig vantar herbergi með baði fyrir mig og konu mína, sem hefur gengið í allan dag". „Því miður", sagði Matti, „öll herbergi eru upptekin, Farísearnir eru með landsþing þessa helgi". „Æi" sagði Jósef, „sérðu ekki að konan mín er kasólétt og getur fætt hvenær sem er".

„Hvað get ég gert, heldurðu að það sé mér að kenna?", spurði Matti á mótelinu.

„Ja, og heldurðu að það sé mér að kenna", sagði Jósef þá við Matta.

14.12.08

Bless Akureyri

Jæja þá er stórfínni norðurferð lokið, við komum heim eftir alveg hreint stórfína helgar reisu til Akureyrar um miðjan dag í dag.
Við byrjuðum helgina á að sjá Frostrósir ásamt Jóhanni Friðgeiri og Garðari Cortes, það var alveg hreint frábær skemmtun og kom manni í þægilegan jólagír.
Á laugardag var sofið út og svo farið í sund og heitu pottana og svo rölt niður í bæ til að fá gott í gogginn.
Og þannig var eiginlega helginni eytt, ekkert stress, bara gert það sem okkur langaði til að gera á því augnablikinu, farið í bíó og svo á kaffihús og gluggað í tímarit og blöð, afslappandi og gott.

Frábær ferð í alla staði.

10.12.08

Juande Ramos tekinn við Real Madrid!

Juande Ramos sem var rekinn frá Tottenham fyrir nokkrum vikum vegna þess að þeir gátu ekki skít tekur nú við sem stjóri hjá Real Madrid!
It's a mad world.

P.s.
Áfram Barcelona!

9.12.08

Byltingar-Teknó-Lagið



Við Ætlum Ekki Að Borga!

Akureyri um næstu helgi

Ég ætla að deila því með ykkur að ég fer ásamt konunni í helgar ferð til Akureyrar um næstu helgi.
Þar fáum við leigða íbúð yfir helgina og ætlum að njóta höfuðborgar norðurlands í þaula, fjörið byrjar strax á föstudagskvöld þegar við förum á tónleika með Frostrósum og meðreiðarsveinum þeirra, tenórunum Garðari Thor Cortes og Jóhanni Friðgeiri.
Það ætti að verða fínasta skemmtun.
Svo er bara að vona að veðrið verði boðlegt svo að laugardagurinn og sunnudagurinn geti orðið eftirminnilegir.
Hlakka til.

8.12.08

Ölvaður á göngugrind !

Tekið af visir.is:
Roskinn Akureyringur saknar sárt göngugrindar sinnar, sem hann týndi einhvers staðar í Lundahverfinu nýverið. Þegar lögregla kom honum til aðstoðar fannst grindin hvergi og hann rak ekki minni til hvar hann hafði glatað henni, enda vel við skál.

Þar sem göngugrindin telst ekki ökutæki sleppur hann hins vegar að öllum líkindum við sektir fyrir að hafa verið drukkinn í umferðinni á henni, líkt og maðurinn, sem var tekinn drukkinn á hjólbörum á Ölfusárbrú um árið.

5.12.08

Enski. Leikir helgarinnar #15

Hr. Rokk dó í nótt



Einstakur íþrótta ferill, einstakur tónlistarferill, alger snillingur.

4.12.08

Veruleika fyrrtur Davíð

Í viðtali við danskt dagblað segir Davíð Oddson að ef hann verði þvingaður frá störfum sem seðlabankastjóri þá muni hann snúa aftur í pólitíkina!
Skemmtileg hótun það.
„Þá hyggst ég hætta af sjálfsdáðum með sama hætti og ég gerði þegar ég lét af starfi forsætisráðherra. Verði ég hins vegar þvingaður úr starfi horfir málið allt öðruvísi við. Þá mun ég snúa aftur í stjórnmálin,“

Heldur maðurinn virkilega að hann eigi framtíð fyrir sér í stjórnmálum eftir allt sem hefur gerst?
Nú er þó nokkuð langt síðan að ég fékk þá tilfinningu að hann veikur í höfðinu, það er bara ekki eðlilegt hvernig þessi áður virti stjórnmálamaður sem var búinn að skrá sig í sögubækurnar sem einn mesti stjórnmálamaður Íslands hefur skitið upp á bak, hann var á seinni árum sem formaður Sjálfsstæðisflokksins farinn að sýna öll einkenni einráðs sem verður að hafa vit fyrir sauðheimskum almúganum.
Nú er það sama að gerast hjá honum í Seðlabankanum, sama hvaða ákvörðun kallinn tekur, ekkert virkar og þessi gamli sjálfskipaði kóngur Íslands þolir ekki að heimskur almenningur skilji ekki hvað hann er klár og góður við okkur.

Ég vona eiginlega að hann verði settur af sem seðlabankastjóri og enn meira vona ég að hann reyni fyrir sér aftur sem stjórnmálamaður, það væri gaman.

28.11.08

Enski. Leikir helgarinnar #14

Djöfull erum við lélegir í tippinu : )

25.11.08

Kvikmyndaskóli hér kem ég!



Jæja, það er nú bara þannig að ég er kominn með inngöngu í Kvikmyndaskóla Íslands og hef þar nám eftir áramót : )
Ég er eins og gefur að skilja gríðarlega spenntur fyrir þessu námi og held bara að þetta gæti verið mín hilla.
Snilld snilld og æði : )

Zune? Já takk!

IPod hvað?
Eftir að hafa horft á þessa fallegu auglýsingu þá langar mig í nýja Mp3 spilarann frá Microsoft.....Zune : )

24.11.08

Skilgreindu "nýtt"

Ég fór í Nóatún hér í Grafarholtinu til að versla lítilræði, og þar sem ég arka framhjá "nýbakað brauð" horninu finn ég til löngunar í eins og eina kleinu með kaffinu þegar ég kem heim, þannig að ég tek eina og finn strax mér til undrunar að hún er ísköld og rök.
Fyrir innan hillurnar var starfsmaður Nóatúns að "baka" og spurði ég hann hvort þessar kleinur væru síðan í gær, nei nei þær eru nýjar sagði hún...............nú sagði ég, en þær eru ískaldar............já sko þær koma frystar og við bara afþýðum þær sagði hún þá.
Já sagði ég þá, og flokkast þær þá sem nýbakaðar spurði ég, já sagði hún þær eru sko frystar strax eftir bökun.
Jæja ég held að ég sleppi þessu bara sagði ég þungbrýnn af vonbrigðum.

22.11.08

Brakandi Snilld!



Mitt fólk að gera góða hluti, eins og vanalega : )

21.11.08

Enski. Leikir helgarinnar #14

Uss bara 3 réttir!
Skammarleg frammistaða, það er ljóst.

Cheerios á villigötum!

Alveg efast ég um að þetta selji.



Ég meina hafa þessir snillar ekki horft á Dagvaktina?

19.11.08

Fóstbræður á DVD


Ég lét verða af því og keypti fyrir það sem eftir var af inneign minni í Skífunni Fóstbræðra seríuna í heild á 5 DVD diskum.
Ég leyfi mér að fullyrða að aldrei hefur verði framleitt eins fyndið sjónvarpsefni hér á landi og þó víðar væri leitað, og eiga þessi kaup mín eflaust eftir að kitla hláturtaugar mínar um ókomna framtíð.
Ja við vorum bara að dáðst af typpinu á þér....til hamingju.

17.11.08

Bíó: Brúðguminn (2008)



Á meðan að kvikmyndin Brúðguminn sópaði að sér verðlaunum á Eddunni í gærkveld þá var ég að horfa á hana.
Skemmst er frá að segja að mér fannst myndin alveg þræl góð, fyndin og dramatísk líka og vel leikin.

Einkunn: 8/10

11.11.08

Hressandi nidurgangur

Nú langar mig ad deila med ykkur teirri reynslu sem ég er ad ganga í gegnum akkúrat núna.
Nú í tessum töludu ordum sit ég á klósettinu med tennan líka svakalega nidurganginn madur lifandi!
Svona hefur tetta verdi í mest allann dag.
Reyndar er varla hægt ad kalla tetta hefdbundna drullu, tetta er meira svona eins og ad míga med rassgatinu.
Svo er madur audvitad kominn med blædandi hringvöfda, tannig ad mig svídur í rassgatid og er reyndar rétt búinn ad jafna mig tegar næsta gusa kemur.
Ljóta helvítis ástandid madur!

10.11.08

Engin megrun fyrir mig!

Ég hef tekið þá ákvörðun að halda bara áfram að vera feitur, það er nefnilega þannig að þegar kreppa er skollin á þá verða allir svo visnir og aumingjalegir, ég vil ekki verða svoleiðis.
Það er eitthvað svo ríkmannlegt að vera feitur í kreppunni, svona eins og í landi hungursneiðar er feitimaðurinn kóngur: )

9.11.08

Feðradagurinn er í dag

Í þriðja sinn er haldinn feðradagur hér á landi, eftir að stjórnvöld samþykktu að gera annan sunnudag í nóvember ár hvert að feðradegi. Raunar er mjög skrítið hvað við erum sein til að heiðra feður sérstaklega því feðradagur tíðkast alls staðar og hefur gert marga áratugi í hinum vestræna heimi.
Vil ég óska öllum þeim körlum sem eru svo ríkir að eiga barn eða börn innilega til hamingju með daginn.
Ég hugsa hlýlega til föður míns á þessum degi, eins og auðvitað alltaf og þakka fyrir í hljóði allt það góða sem hann gerði fyrir mig.

Það er nefnilega ekki sjálfgefið að eiga góðan föður, og fyrir það ber að þakka.

6.11.08

Menntavegurinn

Ég fór í morgun í viðtal uppí Kvikmyndaskóla Íslands vegna umsóknar minnar í tækninámið hjá þeim.
Gaman að segja frá því.
Þar var ég spurður um allt mögulegt og er óhætt að segja að viðtalið hafi verið yfirgripsmikið.
Mér var sagt að venjulega væri auðveldara að komast inn á vorönn en haustönn (færri umsækjendur) en vegna ástandsins í þjóðfélaginu væru óvenju margir umsækjendur núna, en aðeins 12 teknir inn.
Mér fannst viðtalið ganga vel og var mér sagt að ég fengi að vita um niðurstöðu eftir c.a. 2 vikur.
Þetta er að verða spennandi : )

5.11.08

Til hamingju heimur.

Ég vil óska öllum heiminum til hamingju með að ekki bara er heimurinn að losna við einn spilltasta og heimskasta bandaríkja forseta allra tíma, heldur eru þeir búnir að kjósa mann sem hefur alla burði til að verða besti forseti í sögu bandaríkjanna.
Til hamingju öll.

31.10.08

Enski. Leikir helgarinnar #11

Ekki mikil "speki" hjá okkur þessa vikuna : )

29.10.08

NBA

Einu sinni var maður alveg húkkt á NBA, M. Jordan sá til þess að maður varð orðlaus mörgum sinnum í viku yfir ofurmannlegum hæfileikum hans. Svo voru auðvitað aðrir frekar góðir t.d. Magic Johnson, Clyde "The Glide" Drexler, Charles Barkley, Dennis Rodman, David Robinson, Patrick Ewing, Karl Malone og Reggie Miller svo nokkrir séu nefndir.
Allir algerlega stórkostlega góðir leikmenn sem byggðu upp NBA æði um allan heim.
Eitthvað fer minna fyrir þeirri leikmanna dýrkun í dag enda ekki nema von, þessir örfáu sem gætu verið í súperstjörnu stadus eiga við allskonar vandamál að stríða í privat lífinu eins og t.d. Kobe Bryant, án efa einn besti leikmaður deildarinnar síðan M.J snéri sér að golfinu og vindlareykingum.
En hvað um það, ef hverju er ég að tauta um NBA í dag?
Jú deildin hófst í nótt og sigruðu "gömlu stórveldin" Bulls, Lakers og Celtics í sinni fyrstu viðureign, gaman að því.

27.10.08

Óákveðni gaurinn



Svolítið svipað viðtal og við Ólaf handboltaheimsspeking : )

Álfurinn Ólafur.


Ég var eins og eflaust margir nokkuð spenntur fyrir þáttinn hennar Evu Maríu í gær þar sem hún hitti fyrir úber handboltamanninn Ólaf Stefánsson. Ég man eins og flestir eftir einkennilegu viðtali við Ólaf á Olympíuleikunum í Peking, bíip viðtalið svokallaða.
Í því viðtali var hann mjög svo einkennilegur, reyndar fyndinn, svo fyndinn reyndar að ég hélt að hann væri svona djóker enda gekk vel hjá liðinu að allt var í lukkunar velstandi en ég vissi líka að hann væri með hausinn í heimspeki og þetta væri því ekki allt bara djók.
Svo í þessu viðtali í gær mætti maður sem minnti mig á óákveðna gaurinn sem Jón Gnarr fann uppá í Tvíhöfða þáttunum í útvarpinu, hann var svo mikið að pæla að hann gat ekki komið frá sér heilli setningu án þess að slíta hana í sundur með orðum eins og "eða" of fór svo að tala um eitthvað allt annað og sagði svo "eða kannski " og fór svo að tala um enn annan hlut.
Svona fannst mér Ólafur vera í gær, það var t.d. ekki langt liðið á viðtalið þegar sú hugsun skaust í hausinn á mér að hann gæti verði í hljómsveitinni Sigur Rós, sem er auðvitað ekki slæmt.
Ekki það að það hafi ekki verið heilmikið vit í því sem hann var að reyna að segja hann bara kom því svo einkennilega frá sér.
Bííííp.

22.10.08

Dr. Gunni gerir mjöög óhlutdræga skoðanakönnun.

Endilega kíkið á Doktorinn og kjósið.
http://eyjan.is/goto/drgunni/

20.10.08

Harald bróðir 50 ára!


Hólí krapp!
Í dag eru 50 ár liðin frá fæðingu elsta bróður, hvað getur maður sagt annað en til lukku með öll þessi ár kallinn minn og megi næstu 50 fara vel með þig.

18.10.08

Bíó: You Don't Mess with the Zohan (2008)



Ekki besta Adam Sandler myndin en ágætis skemmtun engu að síður.

Einkunn: 6/10

17.10.08

Enski. Leikir helgarinnar #8

Aðeins 5 eins hjá okkur félögunum, nú gætu orðið breytingar á stöðunni : )

Smá kreppu djókur.

“Veistu afhverju fasteignasalar stara ekki út um gluggann fyrir hádegi?”

-
-
-
-
-
-
“Til þess að þeir hafi eitthvað að gera eftir hádegi!”

Trelleley!

16.10.08

Sorg sorg!



Sá hræðilegi atburður átti sér stað á heimili mínu í kvöld að sonur minn ákvað í sakleysi sínu að færa pabba sínum nýju fallegu Liverpool könnuna úr stofunni inn í eldhús þar sem ég var að tala í símann.
Drengurinn hefur væntanlega tekið eftir því að kanna þessi hefur vart vikið úr höndum föður síns síðan að hún var keypt fyrir fáum dögum síðan, en eftir frækilega göngu í gegnum stofuna þá vildi ekki betur til en svo að kannan féll á flísað gólfið í eldhúsinu og brotnaði.
Ég geri mér alveg grein fyrir því að það eru eflaust nokkrir kjánar þarna úti sem vilja lesa úr þessu einhverja vitleysu eins og t.d. að drengurinn haldi með öðru liði en því eina rétta, en ég sé auðvitað að hið eina rétta er það að hann vonast auðvitað eftir því að þegar pabbinn fer á morgun að kaupa nýja könnu þá verði keyptur búningur eða samfella á hann.
Ég nefnilega klikkaði á því í fyrra skiptið, en núna veit ég betur : )

Bíó: Forgetting Sarah Marshall (2008)



Þrælfyndin rómantísk gamanmynd.

Einkunn: 8/10

14.10.08

Bíó: Hellboy II: The Golden Army (2008)



Fínt framhald, en það er er það besta við myndina er handbragð Guillermo del Toro leikstjóra enda er hann snillingur.

Einkunn: 7/10

13.10.08

Gleði gleði : )


Og sjá, hér gefur að líta mína flunku nýju Liverpool könnu : )
Hún er fallega rauð og flúruð með þessu fallega skjaldarmerki Liverpool : )
Ó, gleði gleði !

12.10.08

Bíó: Iron Man (2008)



Alver þrælflott mynd sem sannar enn einu sinni hversu skemmtilegur leikari Robert Downey Jr er.
Mæli með henni.

Einkunn: 8/10

11.10.08

Biðröð eftir slátri!

Það var biðröð út úr dyrum í Hagkaup í dag eftir slátri, kreppan er greinilega að gera sig.
Næstu fréttir verða eflaust af biðröð eftir marineruðum skósólum á niðurgreiddu verði.

10.10.08

Sjálfsvígshrina hafin!

Ég hef það eftir öruggum heimildum að 4 sjálfsvíg hafi verið framin í Reykjavík í gær.
Hrikalegt vægast sagt.

9.10.08

Ekki eitt satt orð.

Á hvern á maður að hlusta þegar allir sem einhverju ráða ljúga sig rænulausa frammi fyrir alþjóð og heiminum ef því er að skipta?
Minni á að viku áður en Glitnir var þjóðnýttur kom æðstistrumpur Glitnis og fullyrti að það væri allt í gúddí og batnaði með hverjum degi. Svo er Landsbankinn tekinn í sömu meðferð og þá fóru menn að velta fyrir sér hvort Kaupþing væri þá ekki á sömu leið en nei nei, þeir voru ennþá með svo sterka stöðu að þeir áttu að geta staðist vandræðin.
Og núna 2 dögum eftir að æðstistrumpur þeirra kemur fram og fullyrðir að þar sé all í gúddí eru þeir orðnir ríkisvæddir líka!
Getur enginn sagt satt frá af þessum fávitum, ég meina það er ekki eins og virði hlutabréfa í bankanum falli eitthvað þegar hann er hvort eð er að fara á hausinn?
Seðlabanka gimpið gerir hverja gloríuna á fætur annari en fær samt að halda áfram........"það er best að ég segi ekkert, það verða allir svo viðkvæmir ef ég segi eitthvað" no shit Sherlock, í hvert skipti sem þú opnar á þér trantinn þá sökkvum við dýpra í skítinn!

Hvernig væri að einhver pólitíkur segði nú eitthvað sem reynist svo ekki vera lygi 2 dögum seinna!

1.10.08

Afmælisdagurinn fyrsti.



Þessi litli snillingur er 1 árs í dag : )
Til hamingju Trausti minn.

29.9.08

Allt að fara til Satans!

Fékk þessa skemmtilegu mynd senda áðan.



Það sem mér finnst óþægilegast í þessu öllu er að fyrir viku síðan fullyrti Lárus Welding í Silfri Egils að staða íslensku bankanna væri góð og ítrekaði það með því að segja að sér fyndist gott að sjá hve bankarnir væru í raun vel undirbúnir fyrir þessa erfiðu tíma sem nú eru á fjármálamörkuðum og þeir væru í raun að styrkjast með hverjum degi sem líður!
Er virkilega já?
Eiga svo ekki hinir vel reknu bankarnir eftir að sökkva í kjölfarið á Glitni?
Nei nei, örugglega ekki enda er ekkert vandamál á ferðinni samkvæmt Geira og Árna.

Fífl!

Sagat-Funk dat



Klassík!

25.9.08

Móa Ræderferð til Skotlands 18-23 sept 08

Ég fór ásamt fjélögum mínum í Móavinafjélaginu til Skotlands til að spila golf.
Þessi ferð hefur verið lengi á döfinni en það var svo í vor sem leið að loksins var ákveðið að láta drauminn um að fara til "mekka golfsins" Skotlands.
Tímasetningin var heldur engin tilviljun, á sama tíma og Evrópuúrvalið keppti við USA í Ryder keppninni, héldum við Móar okkar eigin Ræder keppni á Murryshall vellinum í hálöndum Skotlands.
Liðstreyjur voru gerðar og keppnisfyrirkomulag þrautskipulagt.
Spennan í keppninni okkar var mun meira spennandi en í Ryderkeppni Evrópu og USA og þess má svo til gamans geta að heimamenn í Skotlandi höfðu mjög gaman að þessari "litlu" keppni okkar og vöktu liðstreyjur okkar ávallt kátínu meðal heimamanna : )
Úrslit í Ræderkeppni Móavinafélagsins urðu þannig að "Longshanks" mörðu sigur á "Bravehearts" þrátt fyrir hetjulegt "comeback" þeirra bláklæddu eftir gríðargóða byrjum Longshanks.

Hér eru nokkrar myndir, smellið á mynd til að stækka:


Bolagerð Bjarka.


Menn voru misvelupplagðir í byrjun ferðar.


Hótelbarinn, veitið athygli glæsilegu veggfóðrinu.


M3 varði Móameistaratitilinn og hélt því bikarnum áfram.


M3 og M2 góðir með sig.




Steinninn sem gerði tilraun til fótbrots á M5 á fyrsta degi.


M3, M4 og M7.


Á föstudeginum og laugardeginum voru brúðkaup á hótelinu, sekkjapípuleikarann má sjá hægrameginn við blómabeðið.




M6 að pútta.


Hótelið baðað sólargeislum.


M7 og M1 líta um öxl.


M2 og M4 sælir og ánægðir.


Mitt besta högg ferðarinnar endaði c.a meter frá holu á 4 braut sem er 118 metra löng.
Fékk að sjálfsögðu fugl á þessari : )




M5 klikkaði sjaldan á höggi.


Legið til hliðar við 18 holu á lokadegi og horft á fjélagana klára.


Bjór ferðarinnar.

Snilldar ferð í frábærum fjélagsskap, aftur eftir 2 ár.

24.9.08

Bíó: The Hills Have Eyes II (2007)



Framhald af endurgerðri klassík.
Ekki nógu góð.

Einkunn 5/10

23.9.08

Spurningin.

Ég lagði nokkrar spurningar fyrir mannskapinn um daginn, og þessi urðu svörin:

Enski. Leikir helgarinnar #5