30.10.07

Íþróttir í 24 Stundum

Persónulega finnst mér skemmtilegra að lesa 24 Stundir en Fréttablaðið, veit ekki af hverju, það líklega hentar mér bara betur til lestrar.
En einu hef ég tekið eftir á íþróttasíðunni í 24 Stundum sem mér finnst sérstakt, það er mjög persónuleg og jafnvel rætin umfjöllun um íþróttamenn og konur og jafnvel heilu félagsliðin.
Í blaðinu í dag er t.d. þessi grein um Gareth Southgate knattspyrnustjóra Middlesborough :
" hinn vanhæfi stjóri Middlesborough, Gareth Southgate gæti fengið sparkið á næstu dögum en forsvarsmenn liðsins eru loksins búnir að átta sig á að þar fer hæfileikalítill maður í bransanum og því kannski kjörinn eftirmaður Steve McClaren sem hafði enn minni hæfileika á sínum tíma"

Fimmtudaginn 25 okt var þessi grein á íþróttasíðunni:
"Hinn feitlagni, hrokafulli og leiðinlegi kylfingur Colin Montgomerie er í vondum málum"

Ég veit það ekki, það má auðvitað hlæja að þessu bulli en mér finnst þetta frekar kjánalegt.

28.10.07

Baggalútur klikkar ekki.

Í umræðunni um endurútgáfu barnabókarinnar 10 Litlir Negrastrákar hafa Baggalútsmenn tekið sig til og hnoðað saman vísum um 10 Káta Kynvillinga.

Alger snilld.

27.10.07

Bekkjarmót í kvöld.

Í kvöld fer ég á bekkjarmót, þar hittist útskriftarárgangur 1987 frá gaggó á Hellu.
Ég veit eiginlega ekki hvernig mér líður með þetta, að hitta þarna saman í hóp fólk sem ég hef ekki hitt að neinu ráði í meira en 20 ár, spennó.
Ég er búinn að láta yfirfæra gamlar video upptökur af vhs yfir á dvd af þessu tilefni og á ég von á að flestum þyki gaman að því að sjá þessar upptökur aftur eftir öll þessi ár því ég held að ég sé sá eini í hópnum sem á þetta efni til.
Um er að ræða tvær stuttar leiknar myndir sem við gerðum í skólanum, annarsvegar myndina "Bankaránið" og svo "heimildamynd" um fyrsta nemanda skólans sem kemur í heimsókn í gamla skólann sinn.
Ég horfði á þetta í gær og......úff......frekar óþægilegt : )

En það verður gaman í kvöld örugglega.

23.10.07

Erfitt að vera prestur.

Það hlítur að vera erfitt að vera prestur þessa dagana, ekki bara eru kynvillingar að heimta að fá að giftast eins og venjulegt fólk í kirkjum landsmanna heldur var að koma út ný útgáfa af biblíunni sem tók bara tíu ár að klúðra !
Í Kastljósinu í kvöld mátti sjá umræðuna í þessum málum kristallast í klæðnaði viðmælanda Sigmars, þeir séra Hjörtur Magni Jóhannsson fríkirkju prestur og séra Geir Waage prestur í Reykholti mættu til dyranna eins og skoðanir þeirra leyfa.
Séra Geir Waage var klæddur í prestsskrúða hertur upp í háls stútfullur af aldagömlum kreddum og þröngsýni á meðan Séra Hjörtur Magni kom í fráhnepptri ljósri skyrtu og í svörtum bol innanundir.

Um það sem fór fram þarf ekkert að segja, klæðnaðurinn sagði allt sem segja þarf.

21.10.07

Bíó: I Now Pronounce You Chuck and Larry (2007)

Leikstjóri: Dennis Dugan (The Benchwarmers (2006)

Aðalhlutverk : Adam Sandler, Kevin James, Jessica Biel, Dan Aykroyd, Ving Rhames, Steve Buscemi.

Myndin fjallar um félagana Chuck og Larry sem starfa saman í brunaliðinu.
Eftir einn háskasaman dag í vinnunni ákveður ekkilinn Larry að hann skuli tryggja sig til að börnin hans tvö eigi fjárhagslega framtíð ef hann skyldi falla frá.
En til að fá tryggingu þarf hann að vera giftur og "besta" leiðin til að fara framhjá kerfinu er að giftast besta vini sínum Chuck.

En þetta reynist vera tómt vesen.

Ágætis gamanmynd sem bíður uppá fínan aula og homma húmor.

Einkunn 7/10

20.10.07

Tilkynning !


Ég borða flatkökur !
Og ekki bara nóg með það heldur eru þær bara helvíti góðar, sérstaklega með hangiketi.
Vil ég að þessu tilefni þakka þeim fjölmörgu sem í gegnum árin hafa reynt að sannfæra mig um ágæti flatkökunar, eins og t.d. á þeim fjölmörgu Þjóðhátíðum sem maður hefur farið á í Vestmannaeyjum og eins í öllum þeim útilegum sem maður hefur farið í til Þórsmerkur (djöfull er mig farið að langa þangað aftur).

En hvar brotnaði ég ?
Jú ég fór fyrir c.a. fjórum vikum til M7 og fjölskyldu og þar var ásamt mörgu öðru í boði smurðar flatkökur með hangiketi, og til að þykjast vera dannaðri en ég í raun er þá fékk ég mér flatköku, þessa öldnu baksturs hefð okkar Íslendinga..............og svo fékk ég mér aftur..........og líklega ekki í þriðja skiptið vegna þess að ég var að reyna að vera dannaðri en ég í raun er.

En ekki má taka frá þessa löngu þróun sem þessi nýfundna ást mín er á flatkökunni, þetta er búið að vera að þróast í mörg ár.

Takk til ykkar allra sem hönd hafa lagt á plóginn.

Hvað næst ?
Rúgbrauð....usss ullabjakk nei !

17.10.07

Bíó: The Number 23 (2007)

Leikstjóri: Joel Schumacher
Aðalhlutverk: Jim Carrey, Virginia Madsen.

Walter Sparrow sem starfar sem hundafangari er giftur og á einn son.
Dag einn gefur konan hans honum bók sem heitir The number 23 og við lestur á bókinni fyllist Walter þeirri trú að bókin sé um hann og töluna 23 sem við athugum virðist vera ráðandi í hans lífi.

Sæmileg spenna, ágætt plott.

Einkunn 6/10

Íslensk fyndni

Það kemur stundum fyrir þegar einhver á t.d. afmæli að "vinirnir" setja í Fréttablaðið auglýsingu þar sem viðkomandi er auglýstur á einhvern lygilegan hátt.
Þessi var í Fréttablaðinu í um daginn.

15.10.07

Slagsmál á landsleiknum !

Ég var á vellinum á laugardag og sat rétt hjá þessum stóra hópi Íslendinga sem sér um stuðið á vellinum.

Á milli mín og stuðboltana var lítill hópur Letta sem var að sjálfsögðu í stuði yfir gengi sinna manna, en eitt fór í taugarnar á mér við stuðhópinn okkar íslenska og það var þegar þeir sungu oftar en einu sinni "who the fuck are Lativa" við lagið Go West (Village People) sem mér þótti einkar óviðeigandi og varla til annars en að æsa upp stuðningsmenn Letta.

Nú gafst ég upp á leiknum og yfirgaf völlin þegar ca 5 mín voru eftir af venjulegum leiktíma og varð þess vegna ekki var við nein slagsmál en ég er alveg viss um að við Íslendingar myndum varla þola svona níðsöngva um okkur á erlendri grund, sérstaklega undir áhrifum áfengis.

Djöfull er annars óþolandi að fara á völlinn að horfa á þetta helvítis landslið okkar spila, loksins þegar maður heldur að þeir séu komir í gír þá skíta þeir upp á bak !

14.10.07

Laugardagslögin.

Nú eru tveir þættir búnir af Laugardagslögunum og þó svo að þættirnir séu öðruvísi en ég hélt að þeir yrðu þá eru þeir samt ágætir sem skemmtun, sérstaklega eru Tvíhöfða menn að gera mig glaðan.
Stjórnendur þáttarins eru fínir og eru Ragnhildur og Gísli einkennilegur dúett sem virkar fínt, beauty and the bald guy.
En lögin ?
Jú eins og vanalega valda þessi framlög listamannana miklum vonbrigðum, í fyrsta þættinum voru flutt lög eftir Guðmund Jóns, og Fabúlu og Hafdísi Huld, öll þrú lögin voru slöpp en lag Guðmunds Jóns komst áfram enda er landinn endalaust tilbúinn að hlusta á hvítasunnuflokkinn kyrja.
Í þætti gærkvöldsins voru flutt lög eftir Dr. Gunna, Magga Eiríks og Svölu Björgvins.

Ég hélt í einfeldni minni að nú væri von á tveimur frambærilegum lögum enda doktorinn og Maggi gríðargóðir lagasmiðir, en nei aldeilis ekki !
Doktorinn sveik mig algerlega með hundleiðinlegu tyggjópoppi, og er það alveg furðulegt að þessi fyrrum pönkari skuli vera farinn svona langt frá því sem hann gerir best.
Svo var komið að lagi Svölu sem var róleg ballaða sungin af hvítasunnudrengnum Edgari Smára, bara svona týbíst prump sem á einhvern hátt stendur þó uppúr eftir kvöldið en þá aðallega vegna þeirra vonbrigða sem hin tvö lögin ullu mér.
Maggi Eiríks sem ég fullyrði að er besti laga og jafnvel textasmiður sem þjóðin hefur átt kom svo með sitt framlag sem var flutt af Pálma og einhverri stelpu með honum.
Þegar nokkrar sekúndur voru liðnar af laginu greip mig mjög sterk tilfinning að ég þekkti þetta lag og eftir nokkrar sekúndur í bót var ég búinn að finna það lag í höfðinu.
The Heart Of Rock & Roll flutt af Huey Lewis And The News heitir lagið og er grunn laglínan ótrúlega lík lagi Magga....eða líklega öfugt : )
Ager vonbrigði en lagið hans Huey komst áfram þetta kvöldið og nú á ég enga von lengur um frumlegheit í þessari forkeppni eftir svik doktorsins, að fráskildum Barða í Gangbang.

Langbesta lagið só far er lagið Erfitt flutt af Júlla !

11.10.07

Til lukku


Sunnudagur 4 júní 2006
Til hamingju öll saman með vera búin að fá gamalmenni með dauða rottu á hausnum sem borgarstjóra í Reykjavík !



Þetta skrifaði ég hundfúll yfir úrslitum borgarstjórnarkosningana daginn áður.

Í dag er ég sáttur : )

Bíó: 1408 (2007)

Leikstjóri: Mikael Håfström
Aðalhlutverk: John Cusack, Samuel L. Jackson

Myndin fjallar um Mike Enslin sem er rithöfundur bóka raðar sem fjallar um kynni hans af þekktum draugahúsum og þeim ferðabrannsa sem oft er tengdur draugasögunum, sem alltaf reyndust ekki sannar.
Mike Enslin fréttir svo af herbergi 1408 á hóteli einu í New York og áhveður að gista þar eina nótt þrátt fyrir hörð mótmæli hótelstjórans.
Hann á eftir að sjá eftir því : )

Þetta er ágætis hrollur byggður á sögu Stephens King.

Einkunn 7/10

Aðeins meira um Yoko

Alveg finnst mér merkilegt að á meðan á þessari heimsókn Yoko og Ringo hefur staðið hefur Rás 2 keppst við að spila eins mikið af lögum með Bítlunum og John Lennon.
Ekki það að Rás 2 spili lítið af þessari tónlist alla aðra daga, nei á Rás 2 starfa nefnilega margir dagskrárgerðar menn og konur sem voru upp á sitt besta einmitt á þeim tíma þegar Bítlarnir voru aðal, en það er bara eins og þetta fólk hafi fengið vítamínsprautu í rassgatið fyrir nokkrum dögum, skil ekki svona fólk.

Jæja best að hlusta á nokkur Wham! lög : )

10.10.07

Friðarsúla.

Í gærkveld var kveikt á friðarsúlu Yoko Ono í Viðey.
Mér finnst þetta flott, þó að það megi auðvitað deila um allt þetta friðar tal hér á landi þegar við erum ein af hinum "viljugu þjóðum" og Nato ráðstefna er í gangi nokkur hundruð metrum frá friðarsúlunni.
En kannski er það bara einmitt best að tendra á ljósinu þegar að allt þetta er í gangi, til lítils að vera að minna á frið ef hann umlykur okkur hvort eð er.

Annars finnst mér "kveikt á tímarnir" á ljósinu vera skrítnir, en það mun loga frá fæðingardegi John Lennons, 9. október ár hvert, til 8. desember sem er dánardægur hans. Auk þess mun vera kveikt á súlunni á gamlársdag og mun loga á henni í viku þaðan í frá og að lokum mun einnig loga á súlunni í viku í mars ár hvert. Loga mun á súlunni frá sólarlagi fram að miðnætti á fyrrgreindum tímabilum.

Persónulega hefði ég viljað sjá ljósið loga lengur inn í skammdegið en til 8 des.

Engu að síður flott ljós og ég púa á þá sem segja þetta vera sjónmengun og skemmi fyrir stjörnubjörtum kvöldum í Reykjavík.
Það vita allir að til að njóta stjörnubjarts himnis þarf að fara út fyrir bæinn hvort eð er.

Þessa flottu mynd tók Björnae


Smella á myndina til að stækka.

8.10.07

Aldrei leiðst í vinnunni ?

Þessi kona náði þeim merka áfanga að hafa unnið á sama vinnustað í 40 ár.
Í tilefni þess var tekið viðtal við hana í sjónvarpsfréttum og í blöðum.
Það sem sló mig hinns vegar var að í þessum viðtölum virtist konugreyinu drepleiðast, hún brosti ekki svaraði snubbótt og virtist bara ekkert vera í neinum fíling.
Skoðið myndina, lítur þessi kona út fyrir að njóta vinnunar ?

6.10.07

David Huggins golfari framtíðarinnar.

Átta ára gamall enskur golfari gerði sér lítið fyrir og sló holu í höggi á golfmóti í Suffolk á Englandi um daginn. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema að þetta er í þriðja skiptið sem hinn ungi gólfari nær holu í höggi.

David Huggins var aðeins fjögurra ára gamalla þegar hann í fyrsta skipti sló holu í höggi. Hann var sex ára þegar hann gerði það í annað skiptið. David fagnaði afrekinu í gær með því að kaupa sér gosdrykk. Hann á sér þann draum að verða betri en Tiger Woods en sá var hins vegar sex ára þegar hann sló sína fyrstu holu í höggi.

5.10.07

Radio Ga Ga

Það er búið að vera auglýsa einhvert Queen tribute show núna þessa viku með "bestu Queen tribute hljómsveit íslands" eins og það séu margar slíkar starfandi á landinu : )
Get ekki ímyndað mér annað en að það sé prump !
Hér er klassískur orginall.

4.10.07

Komin heim með Trausta Leó


Jæja ég hef tekið smá hlé héðan vegna komu sonarins en eins og allir vita kom snáðinn á heiminn á mánudag 1. okt.
Nú er ég komin í orlof í tvær vikur en eftir það tekur hversdagslífið við þó svo að það sé varla mikið hversdags þegar maður er með svona kríli á heimilinu og annað gríðar áhugasamt svolítið stærra kríli líka : )