15.5.07

Loksins loksins !

Jæja þá er maður orðinn hitalaus og ætla til vinnu á morgun.
Siðasta blóðrannsókn bendir til þess að þetta hafi verið vírus sem svipar til Einkyrningasóttar.
Ég fæ nánari niðurstöður á föstudag.
Sem sagt allt að verða eðlilegt og fagna ég því mikið !

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með það!
Þá fer maður kannski að sjá
feisið á þér á Kristnibrautinni ;-)
Hvað segir þú um miðvikudaginn í næstu
viku svona kl korter í 7 ;-) eða verður
þú að gera eitthvað annað þá ;-)

M3

M4 sagði...

Þetta er alger snilld !
Í dag í vinnunni var ég spurður hvar ég ætlaði að horfa á leikinn og ég svaraði því til að ætli ég horfi bara ekki á hann heima því ég held að hann sé í opinni dagskrá, og þó svo að það sé mjög gott að fara á Holtakránna að sjá leiki þá virðast mínir menn oftast tapa þegar að ég fer þangað.
En bezt væri örugglega svona til að halda í hjátrúna að fara til vinar míns eins og síðast þegar við komumst í úrslita leikinn : )

Svo kemur meistarinn hér og reddar málunum, já takk ég þygg það með þökkum : )
Sjáumst á miðvikudaginn, helst svolítið fyrir leik svona fyrir fílinginn !
Ég kem með naslið !