Mér finnst fúlt að vera vinna í dag !
Já já, ég veit, ég er að byrja að vinna aftur eftir mánaðar veikindi, og það er einmitt málið, veikindi....það er ekki eins og ég sé bara búinn að vera að dingla mér í þægilegu fríi !
Ég vinn hjá fyrirtæki þar sem helst á að vinna alla daga, og þannig er það í flestum tilfellum !
Á meðan er konan og barnið heima og þegar að hægt var að eiga huggulegan dag á launum með fjölskyldunni þá hefur dagurinn farið í að reyna að gera mig skiljanlegan við Pólverja sem skilja ekki orð í ensku eða Íslensku og eyddi t.d. tveimur tímum uppá bráðamóttöku með Pólverja sem er búinn að vinna hjá okkur í 3 vikur og sagaði í hendina á sér með hjólsög í morgun, en sem betur fer reyndist báttið vera minni háttar.
En þetta vill maður víst........ég er allavega ekki búinn að segja upp : )
4 ummæli:
Hvaða helvítis væl er þetta!
;)
M2
ertu nokkuð að fara að grenja?
M7
Skemmtilegt að það eru aðeins 5 mín á milli komentanna hjá ykkur, tilviljun eða samantekin ráð ?
Hvernig væri nú að blogga frekar en að vera að spá í þessum hlutum ;-)
M3
Skrifa ummæli