News flash.......ég er ennþá veikur, og hefur mér þá tekist að vera sjúkur í einn heilan mánuð (kannski hef ég verið sjúkur lengur, en ég er að tala um veikur sko)
Ég fór til læknis í morgun kl 10 og hafði hann þá niðurstöður úr síðustu blóðrannsókn (#2) og leiddi hún í ljós svo að ekki varð um villst að ég er bara alls ekki með Einkyrningasótt eins og áður var talið heldur eitthvað allt annað !
Þetta þykja mér vera óþægilegar fréttir því ég var að vonast eftir staðfestingu á Einkyrningasóttinni sem er frekar saklaus þó erfið sé.
Neibbs þetta er sem sagt eitthvað annað, og kemur tvennt sterkast til greina :
1. Veirusýking sem heitir Latnesku heiti og verður ekki framborin hér, sýking þessi hegðar sér á flestan hátt eins og Einkyrningasóttin.
2. Lifrarbólga A. Þetta þykir samt ólíklegt þar sem litlar líkur eru á að smitast af henni hér á landi (og líka í Vegas) því hún smitast oftast með menguðu drykkjarvatni og þar sem ég hef hvorki verið í Suður Ameríku né Afríku nýlega þá er þetta mjög langsótt.
En það þarf að fá á hreint hvað er að bögga litla kartöflustrákinn og þess vegna var ég sendur í blóðransókn # 3 uppá Borgarspítala í morgun.
Í þessari rannsókn verður fókuserað á þessa tvo sjúkdóma og fást niðurstöður um nafnlausa sjúkdóminn á mánudag, en lifrarbólgu testið tekur lengri tíma.