3.4.07

Ræktin

Eftir 12 tíma vinnudag er ég að hugsa um að skella mér í ræktina í annað sinn í dag (fór í hádeginu) og horfa á PSV - Liverpool í beinni á Sýn.
Það mætti halda að maður sé í einhverskonar ofurformi, en svo er reyndar ekki þó svo að forminu verður líklega náð einmitt með svona hegðun.
90+ mín á brettinu á röskri göngu er málið í kveld : )
KOMA SVO LIVERPOOL !!!!!

1 ummæli:

M4 sagði...

Já, þetta var alltof auðvelt.....sigurinn sko !
Var annars kominn með blöðru milli tánna eftir brettið : )