Það er búið að vera mjög gaman í ferðinni þrátt fyrir þessi helvítis veikindi sem eru búin að lita ferðina verulega hjá mér, gáfulegast hefði verið að sætta sig strax við komuna hingað að bara liggja og slaka á í einn eða tvo daga og ná þessu helvíti úr sér en neeei, maður bara étur pillurnar sínar og frestar hinu óumflýanlega.
Hvað, maður getur bara legið í bælinu þegar að heim er komið : )
Veðrið er búið að vera mjög gott, hlýtt og svolítill vindur sem hefur hentað mér ágætlega.
Ferðalagið hingað tók ágætlega í mann, 14 klt eftir að lagt var að stað vorum við kominn uppá herbergi algerlega búinn á því.
Þökk sé öryggis eftirliti kanans hurfu þessir þrír tímar sem voru á milli fluga hjá okkur í að standa í biðröð og bíða þess að tekin séu fingraför og myndir og svara spurningum eins og :
Ert þú núna eða hefur þú verið í hryðjuverkasamtökum ?
Ert þú núna eða hefur þú einhverntíma verið starfandi sem njósnari ?
Gaman að þessu : )
Jæja best að leggja sig aðeins : )
Hér eru nokkrar myndir sem ég tók á símann í gönguferð okkar skötuhjúa (ógift ennþá sko)
Já og gleðilegt sumar !
Smella á mynd til að stækka !
2 ummæli:
Geðveikt, er búið að gambla eitthvað????
M3
ps: verður brúðkaupið síðasta daginn?
M3 (aftur)
Kominn heim !
Gamblaði smá en ekkert brúðkaup, en það ver eingöngu vegna þess að Elvis kapellan var yfirbókuð : )
Skrifa ummæli