
Í dag eru aðeins 20 dagar í ferðina okkar hjónaleysa til Las Vegas !
Þetta er hótelið sem við verðum á http://luxor.com/
Ég er búinn að vera skoða ferðir til Grand Canyon og verð ég að segja að það er líklegt að splæst verði í flottan túr þangað enda á sá staður sér ekki hliðstæðu í veröldinni og ólíklegt að maður fái möguleika á að fara þangað aftur þó svo að maður viti auðvitað aldrei.
Svo er ég búinn að vera að skoða möguleikann á að sjá einhverjar spennandi sýningar í Vegas og það er svo sem margt í boði en það sem mér finnst mest spennandi eru tónleikar með Celine Dion, nei nei auðvitað ekki, mest spennandi er mögnuð sýning sirkusins stórmerkilega Cirque du Soleil á MGM Grand hótelinu.
Allavega er maður að vera mjög spenntur !
3 ummæli:
Glæsilegt, á að pússa sig saman í leiðinni?
M3
Neibbs, engar pússningar....nema kannski í Elvis kapellunni : )
En hvurnig er það ætlaðir þú ekki að gera Kristínu að heiðvirtri konu í ár ?
Eða var það 2008 ?
Skrifa ummæli