Þessi sjón blasti við mér fyrir utan B og L kl 16 í dag ! Loksins loksins létum við verða af því að stækka við okkur í bílamálum, ekki þarf að taka fram að ég er gríðarlega ánægður með gripinn og vil helst bara vera á rúntinum : ) Lífið er ljúft !
Þakka þér. Nei hér er engin ritskoðun á ferðinni, líklega bara klúður, þá hjá einhverjum öðrum en þér : ) Það ku vera 2.2 turbo diesel rokkur sem skilar 150 hestum. Alls engin sturlun en þrælvirkar engu að síður og togar víst eins og ég ; )
13 ummæli:
Til lukku elskurnar!
Núna getið þið loksins drullast til þess að kaupa white trash græjur! ;())
Hilsner,
Liðið í Fróðengi
Setjum það í skoðun, ég meina hver vill ekki vera hvítt hyski ?
til hamingju með nýja gripinn, er þetta santa fe?
er þetta jólagjöfin í ár?
kv
M3
Takk takk.
Jamm þetta er nýji Santa Fe-inn og hann er allavega jólagjöfin mín í ár : )
Herra 001, er verið að ræsa blogg ?
til hamingju elsku kallinn minn !
En ert þú samt ekki alltaf á vinnubílnum eins og áður ?
love
M5
:-)
Jú takk, ég fæ eftir sem áður að skröltast um á græna stoltinu (pride sko)
: )
Tja, ég held það bara, maður er náttla að hugsa um umhverfið sko.........
ég sendi inn hamingju óskir í gær, en þetta virðist vera ritskoðað hjá kallinum, sendi bara aftur
Til hamingju með að hafa fattað það að fólk sem býr á fjöllum þarf á fjallabíl að halda.
Þetta er huggulegasta tæki, hvaða rokkur er í honum?
M7
Þakka þér.
Nei hér er engin ritskoðun á ferðinni, líklega bara klúður, þá hjá einhverjum öðrum en þér : )
Það ku vera 2.2 turbo diesel rokkur sem skilar 150 hestum.
Alls engin sturlun en þrælvirkar engu að síður og togar víst eins og ég ; )
Ertu semsagt að segja mér að hann togið sé yfir 300 newtonmetra? M2 þarf að fara að vara sig.
Ég held að Twingóinn minn togi 34-35 nm, niður í móti
M7
Sæll Habbliði
Bara konmin á Studebaker
kveðja FM
FM? Er það nokkuð Father Mói???? ;-)
Gleðileg Jól
M3
Skrifa ummæli