23.12.06

Á maður að hætta að éta ís ?

Ís með dýfu og saurgerlum !
Ég las grein í Blaðinu í dag um að það hafi fundist saurgerlar í ísvél í sjoppu hér í borg og að tíu aðrar sjoppur/ísbúðir hafi þurft að hætta að selja ís tímabundið vegna lélegrar útkomu í bakteríumælingu.
Þetta er auðvitað svakalegt, og vekur mann til umhugsunar um hversu mikið maður treystir öðrum til að matreiða ofaní mann, ég meina saurgerlar.......þetta gefur alveg nýja mynd af ís í heitri súkkulaðisósu !
Hvað er fólk að gera, eru manneskjur sem afgreiða mat ekki að þvo sé um hendurnar eftir að kalli náttúrunar hefur verið sinnt ?
Eða getur verið að starfsfólk Emmess eða Kjörís hafi gert sig sekt um óþrifnað ?
Allavega mun ég hugsa mig tvisvar um næst þegar að mig langar í ís úr vél..........já ég gleymdi að taka fram að tvær af þessum 11 sjoppum eru hér í Grafarholtinu og er (var) ég tíður gestur hjá þeim í sumar, reyndar hefur annari sjoppuni verið lokað núna, ég get ekki ímyndað mér afhverju.

Já, ég gerði tvöfaldan skammt af heimalöguðum Toblerone Ís í dag !
Algerlega hreinn á höndunum !

Engin ummæli: