Í þessari viku hef ég hitt á að heyra hluta af dægurmála útvarpi rásar 2 þar sem "fréttaritari norðurlands" er með sinn bút í þættinum.
Þrisvar sinnum í þessari viku hefur umfjöllunarefnið verið pylsur, fyrst var tekið viðtal við hinn rosa spes agureyríska pylsusala sem selur hákarl í pylsubásnum sínum ! Vá svaka spes !
Svo var verið að kanna hvot samhengi væri á milli pylsusölu og hraðaksturs á agureyri og eftir miklar pælingar var lögreglustjórinn spurður og hann sagði þvert nei, var greinilega ekki í stuði fyrir svona bjánalegar pælingar.
Svo í dag var stúlkan úr eyjafirðinum að taka saman hvað fólk borðar að meðaltali margar pylsur á viku !
Annaðhvort er þessi agureyríska mær með pylsufettish á háu stigi eða pabbi hennar á pylsuvagninn !
Jæja bezt að fara að grilla pylsur !
Satan.
2 ummæli:
hey! hvar er umsögnin um undankeppnina...ég bíð spennt eftir að heyra hvað þú hefur að segja ;0)
Já, það er búið að vera einhvert helvítis bögg að koma póstunum inn á síðuna ef að þeir eru of langir eins og ég var reyndar að útskýra í póstinum "skíta drasl" hér fyrir ofan ; )
Skrifa ummæli