
Ég fór í gærkveld ásamt konunni í Háskólabíó á tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands og valinkunnra tónlistarmanna sem fluttu tónverk Jeff Wayne " War Of The Worlds"
Hljómsveitarstjóri: Bernharður Wilkinson
Sögumaður: Jóhann Sigurðarson
Einsöngvarar: Margrét Eir, Jón Jósep Snæbjörnsson, Matthías Matthíasson og Friðrik Ómar Hjörleifsson.
Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson:
Leikstjórn: Sigurður Sigurjónsson
Það verður að segjast alveg eins og er að þessi flutningur var alveg magnaður, og þar sem við sátum nánast alveg upp við sviðið sá maður mjög vel sögumanninn Jóhann og söngvarana alla og svo mændi maður upp á bíótjaldið á myndirnar sem þangað var varpað úr bíóvélinni en þessar myndir eru einmitt úr bæklingnum sem fylgdi plötunni og eru listaverk í sjálfu sér sem hjálpa manni að sjá fyrir sér það sem er að gerast í sögunni.
Og svo þegar að herlegheitunum lauk langaði mig mest til að fela mig einhverstaðar og sjá líka seinni flutningin en honum hafði verið bætt við þegar að seldist upp á þá fyrri, en það seldist líka upp á seinni tónleikanna.
Allavega, þetta var hrein snilld og mun seint gleymast.
Satan.
2 ummæli:
Ótrúlega svipuð útsetning en bara ólýsanlegt að fá þetta svona beint í feisið !
Halló!! hvar er kallinn?? ertu enn að jafna þig eftir innrásina frá mars....???
Skrifa ummæli