Furðuleg símasamskipti sem ég hef verið í undanfarna daga, á sunnudagsmorgun fyrir viku siðan hringdi síminn kl 9:30 ca. í Ég svara tiltölulega ný vaknaður með þessu vanalega halló.......
hæ...segir þýð kvennmannsrödd á hinum endanum,
hæ svara ég á móti.....
hvað segiru...spyr hún...
ég segi bara gott...en þú ?
bara fínt, svarar hún....
varstu að vakna spyr ég ?
já......var ég ekki örugglega að vekja þig ? spyr daman...
jú jú svara ég....
heyrðu.....ég er nú ekki gáfaðri en það að ég gleymdi veskinu mínu hjá þér þarna í gær.....segir röddin hálf skömmustulega.
nú, segi ég.....ertu viss um það ?
já, alveg viss svarar hún.
Hvar helduru......ég sé það ekki hér segi ég....
ég man ekki alveg svarar hún.....
jaa.....það er ekki hér hjá mér...segi ég...
er það ekki spyr hún...
nei.....enda varst þú ekki hjá mér í gær, segi ég...
smá þögn....
hvað meinaru ? spyr daman og er ekki alveg að fatta húmorinn hjá mér....
þú ert að hringja í vitlaust númer, segi ég...
HA ! hrópar daman upp yfir sig...
já, segi ég og fer að hlæja....
GUÐ MINN ALMÁTTUGUR....fyrirgefðu....ég trúi þessu ekki....dísus.....
ég get varla svarað vegna hláturs....
fyrirgefðu...ítrekar daman og dauðskammast sín...
ekkert mál segi ég hlæjandi...
konan leggur á, og ég fer hlæjandi að útskýra fyrir minni hvað gekk á.
Nú síðan á miðvikudagsmorgunn kl rúmlega 7 fæ ég sms, þegar að ég ætla svo að lesa það sé ég að það er tilkynning frá Símanum gsm um að ég hafi fengi mms skilaboð, og þar sem gsm síminn minn gúdderar ekki slík skilaboð þá geti ég farið inná "siminn.is/mms" og með tilgefnu lykilnúmeri geti ég skoðað skilaboðin.
Það geri ég svo þegar að ég kem heim frá vinnu síðar sama dag, og það var nákvæmlega svona :
Var ad koma heim get ekki hugsad mer ad mæta i vinnu, er búin ad hugsa
og hugsa og gráta i alla nòtt nidurstadan er ad þér sè alveg sama um mig
og ad þù myndir aldrei koma svona fram vid mig ef þú elskadir mig
takk fyrir allt en ekki halda ad eg geti bara gleymt þér :,(
Með þessu fylgdi svo sjálfsmynd að konu sem leit svo sannarlega út fyrir að vera ósofin og útgrátin.
Þetta fannst mér frekar óþægileg og krípý skilaboð og biðst undan fleiri slíkum í framtíðinn.
Fleiri svona hringingar eða skilaboð munu verða til þess að konan mín leyfir mér alls ekki að fara út á lífið í náinni framtíð, þannig að.....látið mig í friði......
Satan.
1 ummæli:
bara snilld
fáum við ekki að sjá myndina af beibinu?
M7
Skrifa ummæli