14.10.04

Mikilmennskubrjálæði !

Rosalega væri frábært ef að það væri hægt að senda alla íslensku þjóðina til sálfræðings, í það minnsta fótboltaáhugafólkið, það er alveg á hreinu að við yrðum greind með mikilmennskubrjálæði og samkvæmt Durex könnuninni er þjóðin líka með alvarlega brókarsótt og jafnvel líka hjálpartækja fíklar !
Hvernig stendur á því að við höldum alltaf að við séum jafnokar eða jafnvel betri en margar stórþjóðir í fótbolta ?
Ók, við öðru hvoru slysumst til að gera jafntefli gegn þjóðum sem eru talsvert hærra skrifaðar en við, og stundum jafnvel náum við að sigra okkur betri þjóð, og þá gerist það...bingó.....við sannfærumst um að við séum ranglega skráð á heimsstyrkleikalistanum þar sem við erum núna í 88. sæti. Og það er einmitt málið, # 88 við erum bara alls ekki betri en það ! Ég vil að Eiður Smári sæki um ríkisborgararétt annars staðar, hjá landi þar sem hann getur spilað með sambærilegum talentum. Hann yrði flottur í framlínunni með Rooney t.d. Ég mundi allavega eiga auðvelt með að skilja hann ef að hann gerði það.
Við munum aldrei komast á HM og og ennþá síður á EM ! Eini sjénsinn til að komast á EM væri ef að við myndum lenda í riðli með : Lichtenstein, Færeyjum, Möltu, Grænlandi, og Luxemburg en það getur aldrei gerst, og þó svo að það gæti gerst yrðum við samt í basli með að komast áfram úr þessum riðli !
Hvernig datt nokkrum heilvita manni það í hug að sama lið og klóraði í jafntefli við Möltu gæti unnið Svía ?
Við töpuðum einfaldlega fyrir Svíum vegna þess að við erum mörgum þrepum neðar í fæðukeðjunni en þeir !
Það eru örugglega til einhver góð geðlyf við mikilmennskubrjálæði, setjum Actavis í málið !


Satan.

Engin ummæli: